06. Feb. 2026

Egill Helgason stýrir umræðum um Óresteiu

 

Umræður um Óresteiu í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið og Grikklandsvinafélagið Hellas standa fyrir sameiginlegum viðburði, umræðum sunnudaginn 15. febrúar kl. 14 í tengslum við hina rómuðu sýningu Benedicts Andrews á Óresteiu.

Sýning Þjóðleikhússins á Óresteiu, leikverki leikstjórans Benedicts Andrews sem innblásið er af samnefndum þríleik Æskílosar frá tímum grísku gullaldarinnar, hefur fengið einstaklega góðar viðtökur. Þjóðleikhúsið stóð að vanda fyrir umræðum með þátttöku listafólks í sýningunni eftir 6. sýningu á verkinu, og var þá fullt út úr dyrum. Þjóðleikhúsið og Grikklandsvinafélagið Hellas hafa nú ákveðið að bregðast við hinum mikla áhuga á sýningunni með því að bjóða upp á sérstakar umræður um hana. Egill Helgason, formaður Grikklandsvinafélagsins mun spjalla við Benedict Andrews leikstjóra og Melkorku Gunborgu Briansdóttur aðstoðarleikstjóra. Umræðurnar verða í Leikhúskjallaranum í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 15. febrúar kl. 14.00. Samtalið fer fram á ensku. Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn.

Nánar um sýninguna

Óresteia er nýtt og einstaklega kraftmikið leikverk eftir Benedict Andrews innblásið af sígildum þríleik gríska leikskáldsins Æskílosar. Verk Æskílosar hefur talað með máttugum hætti til mannkynsins, kynslóð eftir kynslóð, og efni þess á við okkur óþægilega brýnt erindi í dag. Hér birtast okkur vægðarlaus átök innan fjölskyldu og skelfilegar afleiðingar stríðs og blóðhefnda. Þjóðleikhúsið teflir fram hópi fimm framúrskarandi leikara sem ögra sjálfum sér á nýjan hátt í krefjandi sviðsetningu. Líkamleg nánd leikaranna, hrá fegurð textans og áhrifamáttur myndmáls og tónlistar bjóða upp á einstaka listræna upplifun.

Benedict Andrews hefur leikstýrt margverðlaunuðum sýningum í mörgum af helstu leikhúsum heims og fyrri sýningar hans í Þjóðleikhúsinu hafa sannarlega slegið í gegn hjá áhorfendum og hlotið fjölda Grímuverðlauna. Breska þjóðleikhúsið tilkynnti nýlega að Benedict Andrews myndi setja þar upp á árinu leikgerð sína Electra / Persona með leikkonunum Cate Blanchett, Nina Hoss og Ella Lily Hyland. Meðal annarra leikhúsa sem Benedict hefur starfað við eru Schaubühne í Berlín, Young Vic í London og Sidney Theatre Company í Ástralíu.

Úr umfjöllun gagnrýnenda um sýninguna:

*****

⭐⭐⭐⭐⭐

„Allt gengur upp… Sviðsetningin er unaður á að líta, enda Benedict Andrews trúlega fremstur í þeirri list af þeim leikstjórum sem vinna í íslensku leikhúsi… Það er hrein unun að sjá úrvalslið Þjóðleikhússins takast á við þennan ógnvekjandi efnivið.“

Morgunblaðið

⭐⭐⭐⭐⭐

„Óresteia er mögnuð upplifun með frábærum leikurum.“

Visir.is

⭐⭐⭐⭐1/2

„Ómissandi menningarviðburður … Leikhópurinn er framúrskarandi, óhrædd við að berskjalda sig og samleikurinn til fyrirmyndar.“

Heimildin

„Hvílíkir leikarar … Ég hef séð allar sýningarnar sem Benedict Andrews hefur sett upp hér á landi og vil leyfa mér að fullyrða að honum hefur aldrei tekist betur. Þetta er ekki aðeins sú lengsta í klukkutímum talið heldur sú frumlegasta, áhugaverðasta, grimmasta og fegursta. Efniviðurinn er líka óviðjafnanlegur … þessi sýning sannar að hann á ennþá brýnt erindi við okkur.“

TMM

„Leiksýning sem þessi sýnir að íslenskt leikhús er á heimsmælikvarða.“

Víðsjá, RÚV

Leikarar í sýningunni eru Nína Dögg Filippusdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson. Elín Hansdóttir er höfundur leikmyndar, búningahöfundur er Filippía I. Elísdóttir, lýsing er í höndum Björns Bergsteins Guðmundssonar og Bára Gísladóttir semur tónlist og hannar hljóðmynd ásamt Aroni Þór Arnarssyni. Aðstoðarleikstjóri og dramatúrg er Melkorka Gunborg Briansdóttir og þýðandi er Kristín Eiríksdóttir.

 

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími