16. Feb. 2026

Einstaklega vel heppnað kennarakvöld

Föstudaginn 6. febrúar bauð Þjóðleikhúsið meðlimum Kennaraklúbbs hússins í heimsókn. Vel á annað hundrað kennara komu saman í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson höfundar söngleiksins Ormstungu spjölluðu við hópinn um aðdraganda söngleiksins, höfundarstarf sitt, íslenska tungu og margt fleira. Kristinn Óli S. Haraldsson sem fer með hlutverk Hrafns Önundarsonar í söngleiknum mætti einnig og ræddi um notkun íslenskunnar í rappi og hlutverk sitt í söngleiknum.

Kennaraklúbbur Þjóðleikhússins var settur á laggirnar vorið 2025 og hefur vaxið ört síðan og telur nú um 400 meðlimi.

Nánanir upplýsingar um klúbbinn og skráningu má finna hér!

Kennaraklúbbur Þjóðleikhússins
Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími