02. Nóv. 2023

Draumaþjófurinn tekinn upp fyrir sjónvarp

Sýning Þjóðleikhússins Draumaþjófurinn verður tekin upp í samstarfi við Sjónvarp Símans þann til  5. nóvember næstkomandi, en stefnt er að því að sýningin verði aðgengileg í sjónvarpsveitu Símans á næstunni. Eftir hartnær fimmtíu sýningar er nú komið að leiðarlokum í þessu skemmtilega ferðalagi. Sýningin hefur heillað unga sem aldna;  var valin Barnasýning ársins á Grímunni og leiksýning ársins á Sögum, verðlaunahátíð barna.

Okkur þykir rétt að upplýsa þá leikhúsgesti sem eiga miða á seinni sýningu sunnudaginn 5. nóvember að tæknifólk verður að störfum á tveimur stöðum í salnum, en allt verður gert til að lágmarka truflun. HHugsanlegt er að sumir leikhúsgesta sjáist lítillega í endanlegri upptöku versksins líkt og gengur þegar um slíkar upptökur er að ræða. Það er okkur mikið ánægjuefni að geta boðið landsmönnum öllum að njóta verksins í sjónvarpsveitum Símans þegar þar að kemur.

NÁNAR UM SÝNINGU

 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími