Lee Proud sér um dans og sviðshreyfingar í söngleiknum Sem á himni í Þjóðleikhúsinu.
Lee Proud hefur séð um dans, sviðshreyfingar og leikstjórn í fjölda sýninga í Bretlandi og víða um heim. Hann sá m.a. um dans og sviðshreyfingar í Mary Poppins, Billy Elliot, Mamma Mia!, Rocky Horror, Matthildi, 9 lífum og Emil í Kattholti í Borgarleikhúsinu og í Kabarett, Vorið vaknar og Benedikt búálfi hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann hefur verið listrænn stjórnandi og danshöfundur Söngvakeppninnar hjá RÚV frá árinu 2019. Uppfærsla hans á Kinky Boots í Kaupmannahöfn hlaut Reumert-verðlaunin. Hann leikstýrði The Music of Andrew Lloyd Webber hjá Curve Leicester og Once on this Island hjá Southwark Playhouse. Hann hefur fengið fjölda tilnefninga til Grímuverðlaunanna og hlaut verðlaunin fyrir Matthildi.