/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Eva Björg Harðardóttir

Höfundur, Leikmynda- og búningahöfundur
/

Eva Björg gerir búninga fyrir Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu í vetur, sem og leikmynd og búninga fyrir samstarfsverkefnið Hreiðrið.

Eva Björg Harðardóttir lauk MA námi í leikmynda- og búningahönnun frá University of the Arts London árið 2016. Eva Björg er einn stofnenda leikhópsins Miðnættis og hefur hannað búninga og leikmyndir fyrir öll verkefni hópsins, þar á meðal Tjaldið (2021) og Á eigin fótum (2017) sem báðar hlutu tilnefningu til Grímuverðlaunanna, Djáknann á Myrká: Sagan sem aldrei var sögð (2019) og Jólaævintýri Þorra og Þuru (2019). Eva Björg gerði leikmynd og búninga í Geim-mér-ei (2021) í samstarfi Þjóðleikhússins og Miðnættis.

Meðal annarra verka sem Eva Björg hefur hannað eru Blómin á þakinu í Þjóðleikhúsinu (2025), óperurnar Brúðkaup Fígarós (2025) og Hans og Gréta (2024) með Kammeróperunni, Palli var einn í heiminum (2023), óperan Mærþöll (2022), búningar í Langelstur að eilífu (2022) fyrir Gaflaraleikhúsið, Allra verða von með Hringleik (2021), Tréð með leikhópnum Lalalab (2020), Ástarjátning með kammerhópnum Cauda Collective (2020), Krúnk krúnk og dirrindí fyrir Menningarfélag Akureyrar (2018), Fokkað í Fullveldinu á vegum fullveldishátíðar og Þjóðleikhússins (2018) og Róló með Sirkus Íslands (2017). Einnig hefur Eva Björg starfað við kvikmyndagerð og sviðssetningar fyrir viðburði og heimildaþætti.

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími