Aðventuvagn Þjóðleikhússins fer á stjá

Fríður hópur leikara, söngvara ásamt undirleikara. Listafólkið skiptir sér niður og fer í fjögurra manna hópum og skemmtir víða um borgina.
Líkt og undanfarin ár stendur Þjóðleikhúsið fyrir opnum aðventustundum fyrir aldraða víðsvegar um Reykjavík. Leikarar Þjóðleikhússins og söngvarar Óperunnar ferðast um borgina með fjölbreytta dagskrá, og alls verða sýningarnar rúmlega tuttugu talsins. Sýningarnar eru ekki síst hugsaðar fyrir þau sem eiga örðugara um vik að sækja menningarviðburði en fá hér jólastemninguna senda heim í sitt nærumhverfi.
Þjóðleikhúsið hóf að bjóða upp á aðventustundir í samstarfi við velferðarsvið Reykjavíkurborgar í Covid-faraldrinum, en heimsóknirnar vöktu svo mikla gleði að ákveðið var að halda áfram með þetta fallega verkefni.
Örn Árnason hefur leitt aðventustundirnar frá upphafi, en í hópi þeirra leikara sem heimsækja eldri borgara í ár eru þau Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Þuríður Blær Jóhannesdóttir, Birta Sólveig Söring, Sigurbjartur Sturla Atlason og Edda Björg Eyjólfsdóttir. Söngvarar Óperunnar, þau Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Jóhannesson, skiptast einnig á að fara með í ferðirnar. Meðleikarar eru Clément Huber, æfingapíanisti Óperunnar, og Richard Schwennicke tónlistarstjóri Óperunnar.
Sýningarnar fara fram á félagsmiðstöðvum, hjúkrunarheimilum og dagdvölum aldraðra, og eru um hálftími að lengd. Sýnt verður á eftirfarandi dögum og stöðum, og eru öll hjartanlega velkomin.

DAGSKRÁ AÐVENTUVAGNSINS
Þriðjudagur 24. nóvember
-
Kl. 10:30 – Félagsmiðstöð Hæðargarði 31
-
Kl. 13:00 – Félagsmiðstöð Bólstaðarhlíð 43
Miðvikudagur 25. nóvember
-
Kl. 10:30 – Félagsmiðstöð Hraunbæ 105
Fimmtudagur 26. nóvember
-
Kl. 10:30 – Íbúðir eldra fólks, Dalbraut 18–20
-
Kl. 13:00 – Þjónustuíbúðir Dalbraut 27
Þriðjudagur 1. desember
-
Kl. 10:30 – Félagsmiðstöð Hvassaleiti 56–58
-
Kl. 13:00 – Félagsmiðstöð Sléttunni, Sléttuvegi 25
Miðvikudagur 2. desember
-
Kl. 10:30 – Virknimiðstöð Skeifan 8 (fyrir ofan Casa)
-
Kl. 13:00 – Virknimiðstöð Skeifan 8 (fyrir ofan Casa)
Fimmtudagur 3. desember
-
Kl. 13:00 – Félagsmiðstöðin Árskógum 4
Þriðjudagur 8. desember
-
Kl. 10:30 – Þjónustuíbúðir Lönguhlíð 3 (s. 6608780)
-
Kl. 13:00 – Félagsmiðstöðin Aflagranda 40
Miðvikudagur 9. desember
-
Kl. 10:30 – Félagsmiðstöð Gerðubergi 3–5
-
Kl. 13:00 – Hjúkrunarheimilið Droplaugarstöðum, Snorrabraut 58
Fimmtudagur 10. desember
-
Kl. 10:30 – Seljahlíð, Hjallaseli 33
-
Kl. 13:00 – Virknimiðstöð Opus, Völvufelli 11
Þriðjudagur 15. desember
-
Kl. 10:30 – Dagdvöl Þorraseli, Vesturgötu 7
-
Kl. 13:00 – Félagsmiðstöð Lindargötu 59
Miðvikudagur 16. desember
-
Kl. 13:00 – Þjónustuíbúðir Furugerði 1
Fimmtudagur 17. desember
-
Kl. 10:30 – Þjónustuíbúðir Norðurbrún 1
-
Kl. 13:00 – Borgir, Spönginni 43