06. Nóv. 2026

Dýrin í Hálsaskógi er næsta stórsýning í Þjóðleikhúsinu. 15 ár frá síðustu uppsetningu

Nú hefur verið tilkynnt að næsta stórsýning fyrir fjölskylduna í Þjóðleikhúsinu er hið ástsæla leikrit Dýrin í Hálsaskógi. Verkið er eitt þriggja vinsælustu barnaverka þjóðarinnar frá upphafi en hin eru Kardemommubærinn og Lína Langsokkur. Hver kynslóð fær sína útgáfu af þessum verkum og alla jafna rata þau á svið á um 10 ára fresti.  Lína Langsokkur kveður nú innan skamms eftir 115 uppseldar sýningar og eftir að hafa verið valin Barnasýning ársins.

Miðasala

Dýrin í Hálsaskógi verða frumsýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins í september 2027 en undirbúningur er hafin og nú er unnið að ráðningum í helstu hlutverk. Þetta verður jafnframt í sjötta sinn sem verkið verður tekið til sýninga í Þjóðleikhúsinu en samband Thorbjörns Egners höfundar Dýranna og Kardemommubæjarins við leikhúsið er einstakt en hann haf leikhúsinu sýningarréttinn á verkunum til 100 ára. Ný kynslóð íslenskra barna fær nú að hrífast og skemmta sér og hræðast kannski örlítið, líkt og foreldrar þeirra og ömmur og afar gerðu í fyrri uppfærslum. Mikki refur, Lilli klifurmús, bangsapabbi og Amma mús munu birtast ljóslifandi á sviðinu.

Forsala gjafakorta á sýninguna hefst 9. nóvember kl.10. Gjafakortin eru auðvitað frábær jólagjöf og handhafar þeirra verða fremst í röðinni þegar opnað verður fyrir sætaval. Það verður rækilega auglýst síðar og gjafakortaeigendur fá tilkynningu í tölvupósti.

„Látt’ekki eins og þú sért ekki þarna. Ég sé þig vel.“
Aðdáendur Dýranna í Hálsaskógi munu þurfa að bíða aðeins eftir því að komast að því hverjir fara með hlutverk Mikka og Lilla. Það verður Agnes Wild sem mun leikstýra þessari uppsetningu en sýningar hennar undanfarin ár hafa vakið mikla hrifningu, svo sem Blómin á þakinu og ekki síður Lína Langsokkur sem nú kveður Stóra sviðið eftir að hafa verið sýnd 110 sinnum fyrir fullu húsi.

Einstakt samband Egners og Þjóðleikhússins. Kom til Íslands 1962 og hannaði búninga í fyrstu uppsetningu á Dýrunum í Hálsaskógi
Uppsetningar Þjóðleikhússins á Dýrunum í Hálsaskógi eiga sér merkilega sögu en verkið var fyrst sýnt árið 1962 og þá var það höfundurinn sjálfur, Torbjörn Egner, sem hannaði búninga. Dýrin í Hálsaskógi voru þá glænýtt verk og var sýnt víða í leikhúsum í Skandinavíu um þetta leiti. Egner varð svo hrifinn af uppsetningu Þjóðleikhússins að nokkrum árum síðar gaf hann leikhúsinu sýningarréttinn á Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum til 100 ára.

Agnes Wild leikstýrir Dýrunum í Hálsaskógi

 

Viltu vita meira um Thorbjörn Egner?

Thorbjörn Egner

 

 

 

 

 

 

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími