Biskup fjallar um Högg í hátíðarpredikun

Leiksýningin Högg hefur vakið mikla umræðu víða í samfélaginu auk þess sem viðtökur áhorfenda eru óvenjulega sterk. Nú á sunnudag var flutti Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, hátíðarpredikun í Dómkirkjunni sem var útvarpað á Rás 1. Þar gerði Biskupinn sýninguna og söguna sem hún byggir á að umtalsefni. Í predikuninni sagði hún m.a:
“Fyrir skömmu sá ég leikritið Högg í Þjóðleikhúsinu. Verkið, sem er eftir breska leikskáldið James Graham er byggt á sannri sögu, frásögn ungs manns, Jacobs Dunne sem ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi. Jacob var aðeins19 ára gamall þegar hann banaði manni með einu höggi. En Jacob þessi og faðir fórnarlambsins, David Hodgkinson hafa saman unnið að vitundarvakningu um afleiðingar ofbeldis. Þetta leikrit er afar áhrifamikið þar sem unnið er með sátt eða fyrirgefningu og getuna til þess að setja sig í spor annarra í ýtrustu aðstæðum.

Er hægt að fyrirgefa þeim er verður barninu þínu að bana? Er yfirleitt hægt að vilja kynnast og þekkja manneskjuna sem veitti syni þínum banahöggið. Já, og er hægt að fyrirgefa sjálfum þér/sjálfri þér fyrir að verða annarri manneskju að bana.
Í verkinu er glímt við þessar spurningar og margar aðrar en það sem reyndist mögulegt var að foreldrar hins látna og banamaðurinn gátu hafið samtal um leið og þau unnu úr sorginni og áfallinu. Hvort algjör fyrirgefning hefur átt sér stað í verkinu, eða í raunveruleikanum eftir því sem tíminn hefur liðið skal látið ósagt. Þó er ljóst að þau sem þarna koma við sögu hafa í sameiningu dregið fram eitthvað göfugt í hvert öðru, mildi í garð náungans og þannig lýst upp tilveruna fyrir þeim sem kynnst hafa þeirra dýrmætu vinnu.
Það sem þessi atburður, sem leikgerðin var unnin út frá, og samtalið og sáttarferlið sem hann leiddi af sér sýnir okkur svo vel er hversu mikið er spunnið í fólk. Við búum yfir svo miklu meiri dýpt og kærleika en okkur grunar flest. Ef til vill er það einmitt það sem Jesús á við þegar hann segir að við séum salt og að við séum ljós. Það er mikið í manneskjuna spunnið oft er það ekki fyrr en á ögurstundu sem við raunverulega skiljum hvað býr í okkur.

Ég er ekki frá því að samfélagið okkar þurfi á svolítið meiri mildi og fyrirgefningu að halda. Að við ættum að leggja okkur fram um að setja okkur í spor hvers annars og hlusta í stað þess að taka fram lyklaborðið og níða hvert annað. Lífið hefur upp á og svo margt betra og meira að bjóða en biturð. Það býr svo miklu meira í þér og mér en við oft erum fær um að sýna. Ef til vill er gott ráð að, áður en við segjum eitthvað sem gæti meitt, að hugleiða hvernig við getum verið þessari manneskju ljós. Hvernig við getum verið þessum hópi ljós og hvernig við getum dregið fram það góða í náunganum.”
Nánar um Högg