Högg. Magnað verðlaunaverk frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins

Föstudaginn 16. október frumsýnir Þjóðleikhúsið verðlaunaverkið Högg, eftir James Graham. Verkið er unnið upp úr bók Jacob Dunne, Right from wrong, þar sem hann rekur sína eigin sögu. Söguna af því þegar hann varð valdur að dauða annars manns með einu hnefahöggi en ekki síður, söguna af eftirleiknum, fangelsivistinni og ótrúlegum stakkaskiptum á lífi hans eftir að foreldrar hins látna óska eftir því að hitta hann.
Líf hins 19 ára gamla Jacobs snýst um djamm, hasar og spennu. Eitt örlagaríkt laugardagskvöld blandar hann sér í ágreining í miðbænum og kýlir ókunnugan ungan mann með skelfilegum afleiðingum. Hann er dæmdur í fangelsi fyrir manndráp og þegar hann er látinn laus blasir fátt annað við en gamla lífernið. Þegar Joan og David, foreldrar unga mannsins sem dó, óska eftir því að fá að komast í samband við Jacob til að spyrja hann nokkurra spurninga fer líf hans að taka breytingum sem engan hefði getað órað fyrir. Sönn saga um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri.

Eitt augnablik sem breytir öllu
Högg er meistaralega skrifað glænýtt leikrit sem hefur hlotið einstakar viðtökur, meðal annars á West End og á Broadway, eftir hið margverðlaunaða breska leikskáld James Graham. Verkið er byggt á sannri sögu, frásögn ungs manns, Jacobs Dunne sem ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi. Högg er persónuleg saga sem speglar um leið nútímasamfélagið á óvæginn hátt. Verk um blindu, mennsku og möguleikann á að breyta lífi sínu til góðs. Verkið hefur hreyft rækilega við áhorfendum og vakið mikilvægar umræður víða.
Verkið er tileinkað James Hodgkinson og öllum sem hafa látið lífið eftir að hafa verið slegnir einu höggi. Það er byggt á sannri sögu en sumar persónur og atburðir lúta lögmálum skáldskaparins.
Leikarar:
Jakob van Oosterhout, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Jónmundur Grétarsson, Kristinn Óli S. Haraldsson, Sigurbjartur Sturla Atlason, Selma Rán Lima, Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Höfundar og þýðandi
Höfundur leikrits
James Graham
Höfundar bókarinnar Right from Wrong
Jacob Dunne
Þýðing
Kristján Þórður Hrafnsson
Listrænir stjórnendur
Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson
Sviðshreyfingar: Conor Doyle
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Búningar: Filippía I. Elísdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson