Öll tónlistin úr Ormstungu er nú aðgengileg

Í dag er hægt að hlusta á alla tónlistina úr stórsöngleiknum Ormstungu, þrjátíu lög, hvorki meira né minna, á tónlistarveitum. Söngleikurinn sem hefur slegið í gegn í Þjóðleikhúsinu hefur heillað þvert á kynslóðir og gengið fyrir fullu húsi frá frumsýningu í janúar. Tónlist verksins hefur vakið mikla hrifningu og aðeins tvö lög farið í almenna dreifingu þar til nú. Mikil eftirvænting hefur ríkt eftir því að tónlistin öll yrði aðgengileg og nú er loks komið að því. Sýningar hefjast nú að nýju og tilvalið fyrir alla fjölskylduna saman, að tryggja sér miða á þennan stórskemmtilega söngleik.

Upptökumenn voru Þóroddur Ingvarsson og Hafsteinn Níelsson. Þóroddur og Hafsteinn Þráinsson hljóðblönduðu. Hljóðfæraleikarar eru Baldvin Hlynsson, sem jafnframt er hljómsveitarstjóri sýningarinnar, Árni Freyr Jónsson á gítar, Vignir Rafn Hilmarsson á bassa og Sólrún Kjartansdóttir á trommur.
Í hlutverkum Gunnlaugs og Hrafns eru þeir Jakob Van Oosterhout og Kristinn Óli S. Haraldsson. Rán Ragnarsdóttir fer með hlutverk Helgu hinnar fögru. Gunnlaugur Illugason, Hrafn Önundarson og Helga hin fagra Þorsteinsdóttir mynda einn frægasta ástarþríhyrning fornbókmenntanna. Of lengi hafa örlögin hrjáð þau en nú fyrir framan áhorfendur fá þau loksins að gera upp sín mál.

Höfundarnir Omstungu, þer Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson, eru af yngstu kynslóð leikhúslistafólks og ná með glæsilegum hætti að vinna úr menningararfi okkar í nútímalegu og heillandi formi. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir gríðarstórum leikhópi Þjóðleikhússins í þessar kraftmiklu sýningu sem margt af okkar færasta leikhúslistafólki tekur þátt í að skapa.
Gísli Örn er þekktur fyrir töfrandi sýningar og hér leiðir hann einstakan leikhóp. Tónlistarstjóri er Jóhjannes Damian R. Patreksson, betur þekktur sem Jói Pé. Ormstunga er söngleikur fyrir unga sem aldna, með grípandi og fjölbreyttri tónlist. Saga um drauma, ástir og ill örlög. Frískleg og kraftmikil endursköpun á íslenskum menningararfi.

Leikarar:
Jakob van Oosterhout / Gunnlaugur
Kristinn Óli S. Haraldsson / Hrafn
Rán Ragnarsdóttir / Helga
Almar Blær Sigurjónsson
Birta Sólveig Söring Þórisdóttir
Edda Arnljótsdóttir
Eygló Hilmarsdóttir
Guðjón Davíð Karlsson
Hallgrímur Ólafsson
Ilmur Kristjánsdóttir
Kjartan Darri Kristjánsson
Nick Candy
Oddur Júlíusson
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Pálmi Gestsson
Selma Rán Lima
Sigurbjartur Sturla Atlason
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir
Örn Árnason
Listi yfir listræna stjórnendur
Leikstjóri
Gísli Örn Garðarsson
Tónlistarstjórn
Jóhannes Damian R. Patreksson
Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir
Búningar
María Th. Ólafsdóttir
Lýsing
Garðar Borgþórsson
Hljóðmynd
Þóroddur Ingvarsson, Brett Smith