11. Ágú. 2026

Taktu lagið Lóa eftir Jim Cartwright


Þetta fallega og áhrifaríka verk kemur nú í annað sinn á fjalir Þjóðleikhússins  en  uppsetning frá árinu 1995 er mörgum leikhúsgestum ógleymanleg. Sýningin The Rise and Fall of Little Voice fór sigurför um heiminn þegar hún var frumsýnd árið 1992 og varð  umsvifalaust gríðarlega vinsæl. Kvikmyndin (Little voice) frá 1998 og var tilnefnd til bæði Óskars- og Golden Glober verðlauna og leikritið er orðið nútímaklassík. Hér mætist einstök saga, hnyttinn leiktexti og undurfögur tónlist.

Lóa er ung stúlka sem reynir að láta lítið fyrir sér fara á heimili drykkfelldrar og kjaftforrar móður sinnar. Hún leitar skjóls í herbergi sínu til að hlusta á gömlu plöturnar sem látinn faðir hennar átti og voru líf hans og yndi. Þar getur hún verið í friði, horfið inn í heim tónlistarinnar og sungið eins og söngstjörnur fortíðarinnar. Þegar nýr kærasti móður hennar kemst fyrir tilviljun að því að Lóa býr yfir ótrúlegum sönghæfileikum er hann ekki lengi að koma auga á gróðamöguleikana.

Leikarar: Birta Sólveig Söring Þórisdóttir,  Ilmur Kristjánsdóttir, Björn Thors, Kjartan Darri Kristjánsson, Þröstur Leó Gunnarsson og fleiri.

Leikstjóri Þóra Karítas Árnadóttir.
Þýðing:
Auður Jónsdóttir
Leikmynd:
Finnur Arnar Arnarson
Búningar:
María Th. Ólafsdóttir
Lýsing:
Ásta Jónína Arnardóttir
Tónlistarstjórn:
Guðmundur Óskar Guðmundsson
Hljóðhönnun:
Kristján Sigmundur Einarsson

 

 

Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími