Opið hús á Menningarnótt

Lína Langsokkur á Stóra sviðinu og Improv maraþon í kjallaranum
Þjóðleikhúsið býður gestum og gangandi að líta inn á laugardag. Boðið verður upp á atriði úr barnasýningu ársins, Línu Langsokk, þrisvar sinnum yfir daginn auk þess sem hið ótrúlega vinsæla Improv maraþon verður á sínum stað í Kjallaranum.
Þú getur nælt þér í kynningarrit fyrir leikárið 2026-27 í leikhúsinu!
Hægt verður að kaupa léttar veitingar, kasta mæðinni í forsalnum, skoða glænýtt og spennandi leikár og njóta skemmtiatriðanna.
Dagskráin verður sem hér segir:
Lína Langsokkur á Stóra sviðinu
– kl. 14, 15 og 16.
Spunamaraþon Improv í Kjallaranum
– hefst kl. 15.00 og verður á hálftíma fresti til kl. 22.
Verið öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.