Lína Langsokkur, hin eina sanna, frumsýnd á Stóra sviðinu í haust
Þjóðleikhúsið mun frumsýna stórsýningu um Línu Langsokk á Stóra sviðinu næsta haust. Lína Langsokkur er eitt ástsælasta leikverk allra tíma fyrir yngstu kynslóðina – og hver kynslóð þarf að kynnast sterkustu stelpu í heimi sem lætur sig ekki muna um að lyfta hestinum sínum á góðum degi eða hafa tvær löggur undir ef því er að skipta.
Skráðu þig til að vera fremst í forsöluröðinni!
Forsala á Línu hefst 20. mars. Sérstakur forsöluafsláttur, 1000 kr. af hverjum miða, verður í boði fyrstu tvo daga forsölunnar! Það er því til mikils að vinna að tryggja sér miða strax.
Hlutverkaskipan tilkynnt síðar og leikprufur fyrir börn
Ætíð ríkir mikil eftirvænting gagnvart því hverjir leika Línu og vini hennar Tomma og Önnu, auk Prússólínar, lögreglumannanna Klængs og Hængs eða þjófanna Glúms og Gláms. Nöfn leikaranna sem fara með öll þessi hlutverk og önnur verða tilkynnt í mars en á sama tíma hefjast prufur fyrir börn sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni við hlið atvinnuleikaranna. Í fyrri uppsetningum í atvinnuleikhúsi á Línu Langsokk hafa m.a. stórleikkonurnar Sigrún Edda Björnsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Ágústa Eva Erlendsdóttir farið með hlutverk Línu – en hver það verður nú verður opinberað í mars.
Mikið sjónarspil framundan á Stóra sviðinu
Sýningin um Línu Langsokk verður heljarinnar sjónarspil sem mun henta breiðum aldurshópi. Agnes Wild er leikstjóri sýningarinnar en hún hefur vakið mikla athygli fyrir frábærar barnasýningar. Karl Olgeirsson verður tónlistarstjóri en skemmst er að minnast einstakra útsetninga hans á lögunum í Kardemommubænum fyrir skemmstu, reynsluboltinn Finnur Arnar hannar leikmynd og Eva Björg Harðardóttir er búningahöfundur. Þórarinn Eldjárn er þýðandi verksins.
Nú geta allir farið að hlakka til að kíkja inn á Sjónarhól í Þjóðleikhúsinu á næsta leikári.