Fagnið með okkur þegar ný leikritahátíð
Þjóðleikhússins verður haldin í annað sinn!
Eftir geysivelheppnaða frumraun síðasta vetur kynnum við þrjú glæný og spennandi leikrit. Verkin verða leiklesin af stjörnuteymi leikara á glæsilegri vorhátíð sem nefnist Guli dregillinn og fagnar íslensku leikhúsi og skáldunum sem skrifa fyrir sviðið.
Áhorfendur kynnast nýjum íslenskum leikritum eftir höfunda sem segja hrífandi sögur og eiga mikilvægt erindi við leiksviðið. Við ræðum við höfundana um lífið og listina og höldum partí í lok hátíðar.
Aðgangur að Gula dreglinum er aðeins 500 kr. til að staðfesta komu sína.
Koma á Gula dregilinn
Partý dauðans
Melkorka Gunborg Briansdóttir
Melkorka er leikskáld, bókmenntafræðingur og nýútskrifaður sviðshöfundur sem hefur vakið athygli fyrir skarpa sýn á mannskepnuna. Hún hefur sterk tök á forminu, þótt myndirnar sem birtast áhorfendum séu ekki alltaf fallegar. Listalífið hlýtur öflugan liðsauka þegar verk Melkorku komast í snertingu við Þjóðleikhúsið í fyrsta sinn.
„Þið Írar hafið gert dauðann að einhverju skrýtnu þjóðarsporti“
Ekkert segir blússandi partý, skrall, leikir, söngvar og margra nátta gleðskapur eins og dauðsfall í þorpinu. Þetta vita íbúar í Balkenny á Írlandi. Þorpsbúar eru vanir að láta sér dauðleiðast nema þegar einn þeirra deyr, og þá er fjör! Gestir keppast við að segja bestu sögurnar, þreyja aflraunir, drekka heimabrugg, kela, votta samúð sína, reykja pípur og veðja á það sem mestu máli skiptir — hver þeirra deyr næst!
Partý dauðans skoðar sérkennilegan sið úr írskri menningu, líkvökuna. Í verkinu hverfur hulan milli heima lifenda og látinna í veislu þar sem tíminn stendur í stað. Höfundur er af írskum og íslenskum ættum og slær í gott partý með blöndu af gáska, innsæi og leik að mörkum gleðskapar og harms.
Kaupa miða
Hættuspilið
Hallveig Kristín Eiríksdóttir og Eygló Höskuldsdóttir Viborg
Hallveig og Eygló eru einn höfundur með tvö höfuð og skrifa saman leiktexta. Hallveig er gjarnan með leikstjóragleraugun enda menntaður leikstjóri og Eygló heyrir textann óma í hugskoti sínu eins og gjarnan gerist hjá tónskáldi. Nú breyta þær Gula dreglinum í tilraunastofu fyrir aðferðir sem þekkjast ekki endilega hjá einmana rithöfundum. Sprúðlandi óvæntur húmor!
Leikur þar sem allt er undir
Allt er í blóma hjá ungum og metnaðarfullum vinahópi í Reykjavík þúsaldarmótanna. Lífið liggur fyrir félögunum eins og leikborð þar sem hver safnar stigum í kapphlaupi lífsins. Atli æfir kendó, Sæunn les bækur, Hallur spilar rokktónlist og öll ná þau árangri með sínum hætti. Tilverunni er snúið á hvolf þegar ástkær vinur þeirra, Samúel tölvuáhugamaður, freistast til að neyta fíkniefna. Geta þau ratað aftur á rétta braut?
Hættuspil! Söngleikurinn er drepfyndið og beitt verk um vináttu, freistingar og lífsgæðakapphlaupið. Spil með sama nafni kom sem stormsveipur inn í íslenskar borðstofur árið 1998 og margir muna eftir persónum á borð við ömmu sem alltaf ruglast og Sigga sýru. Höfundar söngleiksins leika sér bæði að efnistökum og formi og gera þá frumlegu tilraun að breyta borðspili í söngleik.
Kaupa miða
Jarðarberjadraumar
Mazen Maarouf
Mazen skrifar í fyrsta sinn leikverk fyrir Þjóðleikhúsið en hróður hans hefur þegar borist víða, enda var bók hans Brandarar handa byssumönnum tilnefnd til alþjóðlegu Man Booker-verðlaunanna árið 2019. Auk ljóða- og smásagnasafna hefur Mazen líka sent frá sér allnokkrar þýðingar á íslenskum bókum yfir á arabísku. Það er mikið gleðiefni að sjá verk hans taka á sig mynd innan veggja Þjóðleikhússins.
Vináttan spyr ekki að landamærum
Hassan á afmæli. Hann situr á strætóskýli í Reykjavík með kökusneið og síma en vinur hans svarar ekki. Þegar Mansour loks birtist opnast gáttir fortíðar. Saman flakka þeir í tíma og rúmi og minningar lifna við með ljóslifandi hætti um jarðarberjaakur, varðturn, hesta, skothvelli og draum sem átti að færa þá til frelsis. Skyndilega heyrist hvellur og sambandið rofnar— að eilífu.
Á sama stað reynir Hulda að reisa horfið heimili úr minningum móður sinnar, rétt áður en húsið verður rifið niður. Jarðaberjadraumar tengja saman ólíka veruleika í leiftrandi og ófyrirsjáanlegu leikhúsi þar sem húmor, sársauki og fantasía mætast. Verkið fjallar um það sem fólk tekur með sér þegar það missir heimili sitt – og minningarnar sem lifa áfram þegar allt annað hverfur.
Vilt þú vera með á næsta Gula dregli?
Auglýst er eftir höfundum og verkum undir lok leikárs.
Höfundar og skáld sem skrifa fyrir sviðið eru hvött til að láta í sér heyra. Þjóðleikhúsið stendur á hverju leikári fyrir frumsköpun, þróun á nýjum íslenskum leikverkum og stuðningi við höfunda.
Vinnustofa höfunda
Við bjóðum völdum höfundum sem eru að þróa spennandi verk vinnuaðstöðu í Þjóðleikhúsinu. Höfundar fá aðstöðu í Þjóðleikhúsinu í einn eða tvo mánuði í senn og býðst að eiga samtal við dramatúrga og annað listafólk hússins.
Kraftmikið höfundastarf í Þjóðleikhúsinu
Þjóðleikhúsið leggur áherslu á frumsköpun, ný íslensk verk og stuðning við höfunda á ólíkum aldri og með ólíkan bakgrunn. Við tökum handrit og hugmyndir að leikritum á ólíkum vinnslustigum til skoðunar og köllum reglulega eftir höfundum, leikritum og listrænu samverkafólki.
Sækja um sem höfundurHeyrðu í okkur
Auk umsóknarinnar býðst höfundum ætíð að senda leikhúsinu handrit eða hugmyndir að leikritum í gegnum netfangið leikritun@leikhusid.is.