Kristín stundaði nám í sýningarstjórn í Mountview Theatre School í Lundúnum og brautskráðist þaðan vorið 1981.
Kristín hefur starfað sem sýningarstjóri við Þjóðleikhúsið frá útskrift úr námi og haft með höndum sýningarstjórn fjölmargra verkefna leikhússins, leiksýninga, ballettsýninga, söngleikja og óperusýninga.
Meðal nýlegra sýningarstjórnarverkefna hennar eru Samþykki, Djöflaeyjan, Fjarskaland, Álfahöllin, Yfir til þín, Sporvagninn Girnd, Sjálfstætt fólk – hetjusaga, Fjalla-Eyvindur, Eldraunin, Maður að mínu skapi, Macbeth, Vesalingarnir, Oliver, Sjálfstætt fólk – Ásta Sóllilja, Krítarhringurinn í Kákasus, Draumur á Jónsmessunótt, Kirsuberjagarðurinn, Syngjandi í rigningunni, Cyrano frá Bergerac, Hollendingurinn fljúgandi, Með fullri reisn, Ríkarður þriðji og Edith Piaf.