20. Sep. 2023

Þjóðleikhúsið heimsfrumsýnir Ekki málið – síðasta verkið í Mayenburg-þríleiknum

Þjóðleikhúsið heimsfrumsýnir leikritið Ekki málið eftir Marius von Mayenburg á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 23. september. Í kjölfar frábærs gengis sýninganna Ellen B. og Ex, sem voru sigurvegarar síðustu Grímuverðlaunahátíðar og fengu framúrskarandi viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda, er nú komið að þriðja hluta þríleiksins. Verkin þrjú eru sjálfstæð en ákveðin þemu tengja þau. Það er höfundurinn sjálfur, Marius von Mayenburg, sem leikstýrir Ekki málið, en að öðru leyti er það að mestu sama listræna teymið og skapaði fyrri sýningarnar tvær sem á heiðurinn af þessari sýningu. Leikarar eru þau Björn Thors og Ilmur Kristjándóttir.

Eitursnjallt og einstaklega áhrifaríkt verk sem kemur sífellt á óvart
Simone er rafeindavélfræðingur, nýkomin heim úr viðskiptaferð til Ítalíu með yfirmanni sínum. Hún er með gjöf handa eiginmanni sínum, Erik, sem hefur að vanda sinnt búi og börnum á meðan hún hefur verið í burtu og reynt þess á milli að einbeita sér að þýðingum sínum fyrir bókaforlagið sem hann vinnur hjá. Erik hikar við að opna pakkann. Er kannski eitthvað annað sem fylgir þessari gjöf? En hvað ef það væri Erik sem væri að koma heim úr viðskiptaferð og Simone hefði verið heima að sinna fjölskyldulífinu? Væri þá eitthvað á annan veg?

Ekki málið er einstaklega vel skrifað og eldfimt verk þar sem er fjallað af einstöku næmi og húmor um samskipti kynjanna, hina hálu framabraut, barnauppeldi og tærandi afbrýðisemi. Leikritið er heimsfrumsýnt á Íslandi og nú er það hið virta leikskáld sjálft, Marius von Mayenburg, sem leikstýrir.

Þrjár sýningar á einum degi eftir sama höfund!
Þjóðleikhúsið efnir til Mayenburghátíðar í október og nóvember og sýnir öll verkin. Fyrir þau sem vilja upplifa allar sýningarnar á sama degi er boðið upp á Mayenburgveislu laugardaginn 28. október. Fram að þeim degi verður boðið upp á þétta sýningadagskrá á Ekki málið en í kjölfarið stakar sýningar á eftirfarandi dögum á fyrri verkunum tveimur, auk sýninga á Ekki málið:

Nánar

31. okt.
Ellen B., kl. 20:00

1. nóv.
Ex, kl. 20:00

4. nóv.
Ellen B., kl. 18:00
Ex kl. 21:00

9. nóv.
Ex, kl. 21:00

11. nóv.
Ellen B, kl. 20:00

 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími