Þjóðleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum fyrir leikárið 25/26
Þjóðleikhúsið auglýsir eftir hugmyndum að leiksýningum sem settar yrðu upp í samstarfi leikhússins við leikhópa eða aðra aðila leikárið 2025-2026, í samræmi við 6. grein laga um sviðslistir (165/2019).
Þjóðleikhúsið vill efna til frjós og skapandi samstarfs í þeim tilgangi að efla sviðslistir í landinu og auka fjölbreytni í leikhúslandslaginu. Samstarfsverkefni sem valin eru til sýninga í Þjóðleikhúsinu verða hluti af leikári þess og stefnuáherslum, þau eru kynnt með verkefnaframboði þess og fá aðgang að sérþekkingu starfsmanna, sem og rýmum og tækjum leikhússins, skv. samningi þar um. Samstarfsverkefni geta verið sýnd á einu af leiksviðum Þjóðleikhússins, í rýmum utan þess eða á leikferðum hússins, en sérstök athygli er vakin á því að sýningarrými í Kjallaranum hefur undanfarið verið vettvangur fjölbreyttra og spennandi samstarfsverkefna, sjá hér.
Umsóknir skal senda í gegnum umsóknarkerfi á vef Þjóðleikhússins, leikhusid.is, ásamt greinargóðri lýsingu á verkefninu. Leikhúsið kann að óska eftir frekari upplýsingum eða boða til fundar til að ræða frekar um verkefnin og möguleika á samstarfi.
SENDA UMSÓKNUmsóknarfrestur til og með mán. 27. janúar 2025.