30. Ágú. 2024

Taktu flugið, beibí! Glænýtt íslenskt verk frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 12. september

Þjóðleikhúsið frumsýnir glænýtt íslenskt leikverk eftir Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur, en hún hefur um árabil lifað með líkamlegri skerðingu sem hefur ágerst með aldrinum. Í verkinu taktu flugið, beibí! segir hún sína eigin sögu og leiðir okkur í gegnum sitt eigið lífshlaup. Verkið fjallar um baráttu fyrir framtíð, sjálfstæði og réttindum, og leit að ást og tengslum. Taktu flugið, beibí er einstök saga sem á erindi við okkur öll, saga um framtíðardrauma, ást, fjölskylduna, baráttu og sigra. Kolbrún hefur lokið námi af sviðshöfundabraut LHÍ og meistaranámi í ritlist við HÍ, og er þetta fyrsta leikverk hennar sem sett er á svið í atvinnuleikhúsi. Leikstjóri er Ilmur Stefánsdóttir, en hún hefur verið farsæll leikmyndahöfundur í atvinnuleikhúsum um árabil, auk þess sem hún hefur sett upp sýningar með leikhópnum CommonNonsense. Taktu flugið, beibí er fyrsta leikstjórnarverkefni Ilmar í Þjóðleikhúsinu.

Dark turquoise blue colored foggy forest landscape.

KAUPA MIÐA

Framtíðardraumar, hindranir, barátta og sigrar 

Stúlka ákveður að taka þátt í skólahlaupinu. Hún hleypur af stað. Hún er ein af sætu og vinsælu stelpunum og ætlar að verða leikkona þegar hún verður stór. Hún byrjar að dragast aftur úr. Bilið stækkar á milli hennar og hópsins. Stúlkan blæs sápukúlur og speglar sig í þeim. Sápukúlurnar svífa upp í himininn og brot úr lífshlaupi hennar birtast.  

Kolbrún Dögg og Ilmur Stefánsdóttir vinna að leikverkinu Taktu flugið, beibí eftir Kolbrúnu.

Heillandi verk um baráttu og sigra, byggt á persónulegri reynslu 

Sögupersónan leiðir okkur í gegnum líf sitt sem manneskja með líkamlega skerðingu sem ágerist með aldrinum. Í fallegu, hvetjandi og áhrifamiklu verki, þar sem tónlist, myndlist og dansi er fléttað saman við frásögnina, fylgjumst við með baráttu fyrir framtíð, sjálfstæði og réttindum, og leit að ást og tengslum. Taktu flugið, beibí er einstök saga sem á erindi við okkur öll, saga um framtíðardrauma, ást, fjölskylduna, baráttu og sigra. Leikritið er byggt á persónulegri reynslu og lífshlaupi höfundarins, Kolbrúnar Daggar, sem tekur þátt í sýningunni ásamt Þuríði Blæ Jóhannsdóttur og Ernesto Camilo Alazábal Valdes.  Sýningin er sjónræn og áhrifarík en leikmynd hannar Ilmur sjálf, Filippía I. Elísdóttir hannar búninga og Ásta Jónína Arnardóttir hannar lýsingu. Tónlist er eftir Sölku Valsdóttur.

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ 

Taktu flugið, beibí!
Sýnt í Kassanum
 

Höfundur: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir 

Leikstjórn: Ilmur Stefánsdóttir
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ 

Leikarar: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Ernesto Camilo Alazábal Valdes 

Búningar: 

Filippía I. Elísdóttir 

Tónlist: 

Salka Valsdóttir 

Lýsing: 

Ásta Jónína Arnardóttir 

Hljóðhönnun: 

Brett Smith 

 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími