Sýningartímabil Óresteiu lengt fram að páskum vegna gríðarlegrar eftirspurnar

Um jólin var sýningin Óresteia frumsýnd í Þjóðleikhúsinu en þar er á ferð rúmlega fjögurra klukkustunda sýning hins heimsþekkta leikstjóra Benedicts Andrews sem byggir á 2500 gömlum harmleikjum. Viðbrögð gagnrýnenda og áhorfenda hafa verið með miklum ólíkindum og langt síðan leiksýning hefur hlotið annað eins lof. Fimm stjörnu dómum hefur rignt yfir sýninguna og hástemmd lýsingarorð notuð. Eftirspurn eftir miðum hefur einnig verið gríðarleg og nú er orðið uppselt út sýningartímabilið. Vegna þessara gríðarlegu vinsælda hefur verið ákveðið að lengja sýningartímabilið og sýna fram að páskum.

Óresteia var frumsýnd á annan í jólum og er skemmst frá því að segja að sýningin hefur fengið hreint út sagt einstakar viðtökur, jafnt meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Sýningin er einstaklega krefjandi fyrir leikararana, bæði líkamlega og andlega og óhætt að segja að þau gefi allt sitt í sýninguna. Benedict Andrews og listræna teyminu hefur tekist að skapa ótrúlegt listaverk. Þetta er sýning sem leikhúsunnendur vilja ekki missa af!