04. Des. 2023

Saknaðarilmur fer á svið í janúar. Forsala hafin!

Í liðinni viku var stór stund hjá listræna teyminu á bak við sýninguna Saknaðarilmur. Unnur Ösp Stefánsdóttir las einleikinn að viðstöddum  þeim sem vinna að sýningunni og fleira starfsfólki leikhússins. Unnur skrifar verkið upp úr bókum Elísabetar Jökulsdóttur, Saknaðarilmi og Aprílsólarkulda en það er Björn Thors sem leikstýrir . Það má því má segja að hjónin skipti um sæti frá sýningunni Vertu úlfur sem sýnd var 114 sinnum fyrir fullu húsi og hlaut fjölda verðlauna, var meðal annars valin sýninga ársins. Saknaðarilmur verðður frumsýnd þann 26. janúar í Kassanum.

Leikrit eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur  

Magnaður efniviður Elísabetar Jökulsdóttur öðlast nýtt líf á leiksviðinu í meðförum sama listræna teymis og skapaði tímamótasýninguna Vertu úlfur. Sú sýning hlaut einróma lof, sópaði að sér verðlaunum og hreif þjóðina svo mjög að hún var sýnd í þrjú leikár á Stóra sviðinu. Í þessari sýningu hafa þau Unnur Ösp og Björn Thors endaskipti á hlutverkum; nú er það Unnur sem leikur en Björn heldur um leikstjórnartaumana.

Kaupa miða

Þegar fullorðin skáldkona missir móður sína er komið að stóra uppgjörinu. Nú fyrst er hún tilbúin til þess að horfast í augu við erfiða æsku sína, föðurmissi, geðveikina, ástina og sturlað lífshlaup sitt. Af hverju náðu þessar tvær konur aldrei sambandi, þó að þær hafi deilt öllu lífi sínu, og reynt að horfast í augu í gegnum sorgir og sigra?


Saga af tengslum og tengslaleysi foreldra og barna

Geta áföll gert okkur veik? Erfist þjáning á milli kynslóða? Verkið er áhrifarík saga af lítilli, draumlyndri stúlku sem verður að manísku skáldi, ástföngnum fíkli og stórskemmtilegum sögumanni. Hún er brotin, beitt og brjáluð. Þetta er saga af tengslum og tengslaleysi foreldra og barna, nánd og nándarleysi í veruleikafirrtum heimi sem gerir kröfur um að við pössum í fyrirframgerð mót, stöndum okkur og glönsum. 

Unnur Ösp Stefánsdóttir leikur einleik sem hún hefur samið upp úr Saknaðarilmi og Aprílsólarkulda, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Í vændum er áhrifamikil sýning, gædd sjónrænum töfrum, um viðkvæm en brýn málefni sem snerta okkur öll.



Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími