Prufur fyrir menntaða leikara 2025
Þjóðleikhúsið býður menntuðum leikurum að senda inn umsóknir og upptökur (rafrænar prufur). Prufurnar eru hugsaðar vegna verkefna á leikárinu 2025-2026. Leikarar af öllum kynjum og ólíkum uppruna eru hvattir til að senda inn prufur.
Skráning á umsóknum og innsending á prufugögnum fer fram í gegnum skráningarform á vefsíðu leikhússins. Senda skal inn gögn skv. nánari leiðbeiningum á vefnum, þ.e. upplýsingar um nám og feril, ljósmynd og stutt myndband með eintali og/eða söng (2 mínútur). Öllum umsóknum verður svarað, en ekki verða allir boðaðir í framhaldsprufur.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2025.
Þau sem sendu inn prufur í fyrra og óskuðu eftir því að leikhúsið varðveitti prufurnar áfram, þurfa ekki að senda inn nýjar prufur enda eru hinar fyrri enn fullgildar
Senda prufu