Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Leikhússkóla Þjóðleikhússins veturinn 2026-2027

Árið 2024 stofnaði Þjóðleikhúsið nýjan leikhússkóla, sem býður upp á einstakt tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára til að kynna sér leikhúsið frá ólíkum hliðum og efla færni sína.
Nú er komið að því að taka inn þriðja árgang skólans og er skráning í Leikhússkóla Þjóðleikhússins fyrir haustið 2026 er hafin.
Tekið verður við umsóknum frá einstaklingum fæddum á árunum 2004-2008.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026.
Skil á stuttu verkefni sem sent verður út eftir að umsóknarfresti líkur er 12. apríl 2026.
Boð í prufur verða send út 15. apríl
Prufur verða haldnar daganna 21. og 22. maí 2026.
Skráðu þig hér! Meira um leikhússkólann