21. Jún. 2022

Nýtt lag úr Umskiptingi sem Ragga Gísla semur og flytur

Ljósmynd: Olga Helgadóttir

Ragga Gísla hefur sent frá sér sannkallaðan sumarsmell. Lagið Við erum öll saman í þessu, er úr leikritinu Umskiptingur, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. „Ég fékk þá skemmtilegu beiðni að semja tónlist fyrir nýtt barnaleikrit eftir Sigrúnu Eldjárn og lét ekki spyrja mig að því tvisvar,“ segir Ragga. Hún hefur áður unnið við tónlist fyrir leikhús svo sem fyrir Skáldanótt, Bláa gullið, Nú skyldi ég hlæja, Eyrnastórir og annað fólk, Rauðu skórnir, Hin helgu vé, Svanir skilja ekki og Sími látins manns svo stiklað sé á því helsta.

Leikritið Umskiptingur hefur nú verið á fjölunum í Þjóðleikhúsinu í vetur og verður aftur tekið til sýninga í haust og sala á sýningar haustsins er þegar hafin. Verkið var valið úr 150 leikverkum sem bárust þegar Þjóðleikhúsið kallaði eftir leikritum og hugmyndum að leikritum fyrir börn. Sigrún Eldjárn hefur um árabil verið einn vinsælasti höfundur barnaefnis á landinu. Leikstjórn var í höndum Söru Marti og Ragnhildur samdi tónlistina við verkið eins og áður sagði.

Hlusta á Spotify

Auk þess að semja fyrir leikhús hefur Ragnhildur samið heilmikið að kvikmyndatónlist. Þar má nefna Veðramót, Stella í framboði, Naglinn, Hvítir mávar, Með allt á hreinu, Í takt við tímann, Þrettándinn, Áróra, Lost in Time og nú síðast heimildarmyndina Hækkum rána), sjónvarpsþáttastef (Trúnó og 1918), dansverk (Bræður, Eins og vatnið, Kárahnjúlkar), popptónlist (Ragga And The Jack Magic Orchestra, Human Body Orchestra, Tricky, 808 State, Rombigy, Grýlurnar, Stuðmenn), barnatónlist (Bergmál, Baby, Glámur og Skrámur, Píla Pína, Snælda og Snúðarnir, Gegnum holt og hæðir). Ragnhildur var með verk á Myrkum músíkdögum 2009, 2010, 2011 og á Norrænum músíkdögum 2012. Ragnhildur skrifaði tónlist við dansverkin Bræður á Listahátíð í Reykjavík 2010 og Eins og vatnið á Reykjavík Dance Festival 2010. Hún samdi og gaf út verkin The Dandelion Symphony (einleikur á túnfífil) og Chamber Music Piece for Studs (snittuteinn á rafbassa). Ragnhildur samdi fyrstu íslensku þorralögin svo vitað sé og gaf út á Spotify í janúar 2021.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími