28. Ágú. 2025

Námskeið leikársins 2025 – 2026

Leikárið 2025 -2026 mun Þjóðleikhúsið bjóða upp á þrjú námskeið þar sem farið verður yfir helstu þætti fjögurra ólíkra starfa innan leikhúslistarinnar.

Áhugaleikfélög sem og leikfélög framhaldsskóla landsins eru mikil auðlind og sinna gríðarlega mikilvægu starfi um allt land. Námskeiðin eru liður í að nýta þá þekkingu og hæfni sem býr í Þjóðleikhúsinu til þess í að styrkja og efla þá starfsemi og þar með leikhúsmenningu landsins til framtíðar.

Námskeiðin henta einstaklega vel meðlimum þessara leikfélaga en einnig hverjum þeim sem langar til að auka þekkingu sína, hæfni og leikni á þessum tilteknu sviðum.

Námskeið leikársins eru eftirfarandi:

  • Námskeið í framleiðslu sviðsverka  27.  september 2025 
  • Námskeið í ljósa- og hljóðhönnun helgina 21. – 22. febrúar 2026
  • Námskeið í sýningarstjórnun sviðsverka helgina 21. – 22. febrúar 2026

 

NÁNAR HÉR!

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími