09. Jan. 2023

Hvað sem þið viljið eftir William Shakespeare frumsýnt

Fimmtudaginn 12. janúar frumsýnir Þjóðleikhúsið í Kassanum, Hvað sem þið viljið, eftir William Shakespeare, í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Leikarar eru þau Almar Blær Sigurjónsson, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Hilmar Guðjónsson, Kristjana Stefánsdóttir, sem semur einnig tónlist verksins, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sigurður Sigurjónsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Þórey Birgisdóttir. Karl Ágúst Úlfsson þýðir verkið og skrifar leikgerðina ásamt leikstjóranum.


Hvað sem þið viljið, sem heitir á frummálinu, As you like it, er nú sett upp í þriðja sinn í Þjóðleikhúsinu en það rataði mjög snemma á fjalirnar, eða strax á 2. leikári leikhússins árið 1951. Þá var það í leikstjórn Lárusar Pálssonar og bar titillinn Sem yður þóknast í þýðingu Helga Hálfdánarsonar. Árið 1995 var það sýnt í leikstjórn Guðjóns Pedersen og aftur í þýðingu Helga.  

Kaupa miða

Ný léttleikandi leikgerð í fjörugri og litríkri sýningu
Ágústa Skúladóttir leikstjóri er þekkt fyrir fjörugar, litríkar og heillandi sýningar, og nú hefur Karl Ágúst Úlfsson endurort texta skáldsins á léttleikandi nútímamál í nýrri leikgerð sem er full af húmor og brotin upp af stórskemmtilegri tónlist. Margir okkar flinkustu gamanleikarar blása nýju lífi í ógleymanlegar persónur Shakespeares. Ærslagangur, tónlist  og hjörtu barmafull af ást – í kynjaskógi Shakespeares. Þessi galsafulla gleðisýning færir okkur skemmtilegasta gamanleik Shakespeares í splunkunýjum búningi, þar sem möguleikar leikhússins eru nýttir á frjóan og ævintýralegan hátt og list leikarans er í forgrunni. 

Veröldin er leiksvið! 

Elskendurnir ungu Rósalind og Orlandó neyðast til að flýja, hvort í sínu lagi, undan ofsóknum. Þau hrekjast út í skógana miklu, þar sem þeirra bíða kostuleg ævintýri meðal annarra útlaga. Dulargervi, margfaldur misskilningur, ráðabrugg, fíflalæti og eldheitar ástríður!

Leikstjórn og leikgerð
Ágústa Skúladóttir 

Þýðing og leikgerð
Karl Ágúst Úlfsson 

Tónlist og tónlistarstjórn
Kristjana Stefánsdóttir 

Leikmynd og búningar
Þórunn María Jónsdóttir

Lýsing

Jóhann Bjarni Pálmason 

Hljóðhönnun
Brett Smith

Kaupa miða

 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími