12. Ágú. 2022

Fullorðin! Sprenghlægilegur gamanleikur sem slegið hefur í gegn

Eftir að hafa gengið fyrir fullu húsi tvö leikár á Akureyri mætir Fullorðin loksins í Þjóðleikhúsið. Verkið er sprenghlægilegur gamanleikur um það skelfilega hlutskipti okkar allra að verða fullorðin og misheppnaðar tilraunir okkar til að sannfæra aðra um að við séum það. Fullorðið fólk á að vita hvað það er að gera! Staðreyndin er hinsvegar sú að enginn veit hvað hann er að gera og allir eru að þykjast. Það vekur upp stórar spurningar um það hvenær og hvort maður verði nokkurn tímann fullorðinn? Við leggjum upp í ferðalag um fullorðinsárin og restina af þessari afplánun sem flestir kalla mannsævi!

Leikstjórar: Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og Marta Nordal
Leikmynd: Auður Ösp Guðmundsdóttir
Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir
Hljóðmynd: Gunnar Sigurbjörnsson
Ljósahönnuður Ólafur Ágúst Stefánsson
Aðstoð við leikmynd og búninga Jasmina Wojtyla

Höfundar
Vilhjálmur B Bragason, Birna Pétursdóttir, Árni Beinteinn og teymið

Leikarar
Vilhjálmur B Bragason, Birna Pétursdóttir, Árni Beinteinn Árnason

Kaupa miða
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími