Guli dregillinn haldinn í fyrsta sinn
Á laugardag var leikritahátíðin Guli dregillinn haldin í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn, en þar voru þrjú ný leikrit eftir íslensk leikskáld flutt í æfðum leiklestrum. Viðburðurinn tókst afar vel, fullt var út úr húsi á öllum leiklestrunum og verkunum var ákaflega vel tekið. Í lok kvöldsins var íslenskri leikritun fagnað með leikritapartíi!
Þeir höfundar sem áttu verk á Gula dreglinum að þessu sinni eru Hildur Selma Sigbertsdóttir, Friðgeir Einarsson og Kolfinna Nikulásdóttir.
Undirbúningur fyrir Gula dregilinn 2026 er þegar hafinn og höfundum býðst að senda inn umsóknir um þátttöku á vefsíðu Þjóðleikhússins. Jafnframt er hægt að sækja um dvöl í vinnustofu höfunda í Þjóðleikhúsinu. Síðasti dagur innsendinga er 5. maí.
Guli dregillinn - senda umsóknGuli dregillinn er eitt af þeim verkefnum sem hleypt er af stokkunum í tilefni af 75 ára afmæli Þjóðleikhússins.