29. Jan. 2026

Benedict Andrews leikstýrir Cate Blanchett í National theatre

Cate Blanchett, Benedict Andrews, Hildur Guðnadóttir og Nina Hoss.Mynd: Morgunblaðið

Cate Blanchett, Benedict Andrews, Hildur Guðnadóttir og Nina Hoss. Mynd: Morgunblaðið

Það er skammt stórra högga á milli hjá Benedict Andrews. Eftir einstaka velgengni Óresteiu mun hann leikstýra Cate Blanchett og Ninu Hoss í uppfærslu Breska þjóðleikhússins á nýrri leikgerð sem hann vinnur upp úr kvikmynd Ingmars Bergman, Persona og gríska harmleiknum Elektru.

Sýnt verða í Lyttelton Theatre í London. Óskarsverðlaunahafinn Cate Blanchett mun fara með eitt aðalhlutverk sýningarinnar auk Nina Hoss en þæ léku síðast saman í Tár, þar sem annar óskarsverðlaunahafi, Hildur Guðnadóttir samdi tónlistina, en hún semur einnig tónlistina fyrir Electra / Persona.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hildur og Benedict vinna saman því Hildur samdi einnig tónlistina við eftirminnilega uppfærlsu Benedict Andrews í Þjóðleikhúsins á Lé konungi árið 2010.

Stórvirkið Óresteia var frumsýnt um jólin. Benedicts Andrews er höfundur og leikstjóri verksins en það byggir á þríleik Æskilosar. Frumsýningargestir voru heillaðir og fögnuðu listamönnum vel og lengi með standandi lófaklappi að sýningu lokinni. Í kjölfar frumsýningar hafa fjölmargir áhorfendur deilt lofi um sýninguna á samfélagsmiðlum, m.a. „stórkostlegt listaverk“, „tímamótasýning“ „Stórbrotin“, „sjaldgæfur demantur“, „leikhús eins og það gerist best“, „leikhús á heimsmælikvarða“.

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími