/
Ársskýrslur Þjóðleikhússins

2024 – Árið sem leikhúsgestir fjölmenntu svo um munaði í Þjóðleikhúsið

Árið 2024 var einstaklega fjölbreytt og skemmtilegt leikhúsár í Þjóðleikhúsinu og fjöldi áhorfenda hefur ekki verið meiri í mörg ár. Frost sló gegn, Saknaðarilmur sópaði til sín verðlaunum, Eltum veðrið var loksins frumsýnt og Vertu úlfur skrapp í leikferð til Póllands svo fátt eitt sé nefnt.

ÁRSSKÝRSLA 2024

 

2023 – Ár heimsfrumsýningar á Mayenburg-þríleiknum og fjölda listrænna sigra

Árið 2023 var gott leikhúsár. Leikhúsgestir fjölmenntu í musterið og kunnu vel að meta það sem fyrir augu bar. Ýmsum þótti það djörf ákvörðun að bjóða upp á heimsfrumsýningu á þríleik á glænýjum verkum, eftir  sama leikskáldið, með einungis tveimur eða þremur leikurum á Stóra sviðinu. Nú þegar öll verkin þrjú hafa verið sýnd verður ekki um villst að sýningar á Ellen B., Ex og Ekki málið, eru tímamótaviðburður í íslensku leikhúslífi og einn af hápunktum ársins

En það gerðist fjölmargt fleira. Draumaþjófurinn heillaði gesti unga sem aldna og hlaut titililinn barnasýning ársins. Starfsfólk leikhússins fór í endurmenntunarferð til Barcelona, tilkynnt var um samstarf við Disney, Vesturport og stór norræn leikhús á sýningum á stórsöngleiknum Frosti. Einleikurinn Orð gegn orði sló í gegn og margt margt fleira.

ÁRSSKÝRSLA 2023

 

2022 – Ár nýsköpunar og íslenskra eftirsóttra verka

Árið 2022 var fullt af töfrum, spennandi áskorunum og sprúðlandi frumsköpun. Við erum stolt af þeim verkum sem við sköpuðum saman og þeim viðurkenningum sem leikhúsið hlaut á árinu. En fyrst og fremst erum við þakklát áhorfendum  sem streymdu aftur í leikhúsið og sköpuðum með okkur nýjar ógleymanlegar minningar.

ÁRSSKÝRSLA 2022

 

2021 – Árið sem  áhorfendur nýttu hvert tækifæri til þess að koma í Þjóðleikhúsið

Árið 2021 var magnað og margbreytilegt leikhúsár í Þjóðleikhúsinu. Við erum áhorfendum okkar óendanlega þakklát fyrir áhugann og stolt af ógleymanlegum minningum sem við sköpuðum saman, þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður.

Okkur tókst að koma á svið fjölda sýninga sem við erum stolt af og áhorfendur streymdu á öllum stundum sem það var heimilt.

ÁRSSKÝRSLA 2021

 

Eldri ársskýrslur
Árskýrsla 2019
Árskýrsla 2019

Í árslok 2019 lauk fimm ára ráðningartímabili Ara Matthíassonar þjóðleikhússtjóra og Magnús Geir Þórðarson tók við embætti þjóðleikhússtjóra þann 1. janúar 2020. Aðsókn að leikhúsinu árið 2019 var góð, eða yfir 100.000 gestir (sjá nánar um verkefni leikársins hér að neðan). Aðsóknarmestu sýningarnar voru Ronja ræningjadóttir og Einræðisherrann, sem og uppistandssýningar Mið-Íslands. Rekstur Þjóðleikhússins var jákvæður sem nam 4,8 m.kr. í lok árs.

Smelltu á heiti til að sækja skýrslu!

Ársskýrsla-2019

Ársskýrlsa 2018
Ársskýrlsa 2018

Aðsókn að Þjóðleikhúsinu árið 2018 hefur ekki verið meiri í yfir 40 ár, eða 118.000 gestir á sýningar leikhússins. Samhliða var sætanýting betri en í marga áratugi sem og tekjunýting. Segja má að Þjóðleikhúsið hafi verið rekið með hámarksafköstum á árinu 2018 og því ber að fagna sérstaklega. Það hefði auðvitað aldrei tekist nema vegna þess að í Þjóðleikhúsinu starfar afburðafólk á öllum sviði starfseminnar, fólk sem er tilbúið að leggja mikið á sig til árangurs.

Smelltu á heiti til að sækja skýrslu!

Ársskýrsla 2018

Ársskýrsla 2017
Ársskýrsla 2017

Hin geysimikla aðsókn að Þjóðleikhúsinu sýnir best hinn mikla áhuga Íslendinga á leiklist og er sönnun þess að sýningar okkar hafa fundið hljómgrunn. Þjóðleikhúsið er leikhús allrar þjóðarinnar. Þess vegna munum við á komandi leikári ferðast með leikverk fyrir börn og fullorðna um allt land á yfir 20 staði og tala til tilfinninga og skynsemi.

Smelltu á heiti til að sækja skýrslu!

Ársskýrsla-2017

Ársskýrsla 2016
Ársskýrsla 2016
Ársskýrsla 2015
Ársskýrsla 2015
Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími