/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Unnsteinn Manuel Stefánsson

Höfundur, Leikari
/

Unnsteinn Manuel Stefánsson leikur í Íbúð 10B og Gæðablóð hér í Þjóðleikhúsinu í vetur, en hann er jafnframt einn höfunda sýningarinnar Gæðablóð.

Unnsteinn Manuel Stefánsson er tónlistarmaður en hefur einnig starfað töluvert við dagskrár- og heimildamyndagerð og gerð tónlistarmyndbanda. Hann stundaði nám á sviðshöfundabraut LHÍ og nám í handritaskrifum fyrir sjónvarp í DFFB kvikmyndaskólanum í Berlín. Unnsteinn hefur starfað með hljómsveitinni Retro Stefson frá árinu 2006 en hefur líka gefið út töluvert af tónlist undir eigin nafni. Hann hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum í leikhúsi sem tónskáld, tónlistarstjóri, hljóðhönnuður og handritshöfundur. Hér í Þjóðleikhúsinu sá hann um hljóðmynd fyrir Íslandsklukkuna, auk þess sem hann var aðstoðarmaður tónlistarstjóra í Rómeó og Júlíu. Hann sá um tónlistarstjórn og hljóðmynd í sýningunni Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu, og lék í sýningunni. Hann hefur unnið að margvíslegum verkefnum á sviði listmenntunar fyrir ungt fólk, auk þess sem hann hefur lagt ýmsum góðgerðar- og samfélagslegum verkefnum lið og var m.a. verndari UN Women á Íslandi og sat í stjórn Barnaheilla. Unnsteinn hlaut Grímuverðlaunin fyrir bestu hljóðmynd fyrir Íslandsklukkuna. Þá hefur hann þrívegis hlotið Edduverðlaunin og þrívegis Íslensku tónlistarverðlaunin. Hann hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2024.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími