/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Nick Candy

/

Nick útskrifaðist úr leiklistarskólanum WAAPA í Ástralíu árið 2004. Hann hefur starfað sem leikari og sirkuslistamaður í Ástralíu, Japan og á Íslandi.

Nick leikur í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu í vetur og er aðstoðarmaður leikstjóra í Hreiðrinu.

Í Perth hefur hann leikið hjá Shakespeare in the Park í Rómeó og Júlíu, Þrettándakvöldi og Skassið tamið. Hann lék einnig í mörgum sviðsverkum í Perth, meðal annars fyrir Black Swan State Theatre og Deckchair Theatre, í skólasýningum og loftfimleikasýningum. Á Íslandi hefur hann leikið í Þjóðleikhúsinu í Slá í gegn, Kardemommubænum, og Línu Langsokk. Hjá Miðnætti hefur hann leikið í Tjaldinu, Geim mér ei og Á eigin fótum, sem hefur ferðast til nokkurra landa, nýlega til Japans 2024. Nick er einn af stofnendum Hringleiks Sirkuslistafélags, sem hefur m.a. staðið fyrir sýningunum Allra veðra von (sem vann Grímuverðlaun fyrir sviðshreyfingar), Sirkusmolar og hátíðinni Flipp Festival, og sirkustjaldssýningum sem hafa ferðast í kringum Ísland. Hann var einn stofnenda Sirkus Íslands árið 2007 og var í kjarnahópnum í sýningum, leikstjórn og atriðum. Nick er einn af spítalatrúðunum á Barnaspítala Hringsins.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími