Katla Þórudóttir Njálsdóttir leikur í Þetta er gjöf og Jólagjöf Skruggu í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Katla útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2025. Hún hefur starfað við leikhús, sjónvarp og kvikmyndir sem leikkona frá árinu 2013. Hún lék m.a. í kvikmyndunum Ljósbroti og Hjartasteini og sjónvarpsþáttunum Föngum, Húsó og Vitjunum. Hún lék í Queen-söngleiknum We Will Rock You í Háskólabíói og leikritinu Er ég mamma mín? í Borgarleikhúsinu. Hún samdi leikritið Gunnellu og lék í verkinu hjá sumarleikhúsinu Afturámóti. Katla er annar tveggja meðlima hljómsveitarinnar mammaðín sem gaf út lagið Frekjukast. Katla leikur í Jólagjöf Skruggu í Þjóðleikhúsinu í vetur. Katla hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í Ljósbroti og var tilnefnd fyrir Vitjanir.