/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Jónmundur Grétarsson

Höfundur, Leikari
/

Jónmundur Grétarsson lauk BFA-gráðu í leiklist frá Academy of Art University of San Francisco árið 2014. Hann leikur í Gæðablóð í Þjóðleikhúsinu í vetur og er jafnframt einn höfunda verksins. Hann lék í Rómeó og Júlíu, Karitas og Latabæ í Þjóðleikhúsinu. Jónmundur er einn af stofnendum Elefant leikhópsins og hann lék í tveimur samstarfsverkefnum Þjóðleikhússins og Elefant, Smán og Íslandsklukkunni. Síðarnefnda sýningin hlaut fjölda tilnefninga til Grímunnar. Í vetur lék Jónmundur í Bústaðnum í Tjarnarbíói og var framleiðandi sýningar Elefant á verkinu Þegar ég sé þig sé ég mig í Borgarleikhúsinu. Jónmundur hefur leikið í fjölmörgum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, bæði hérlendis og erlendis. Hann lék m.a. í Systraböndum sem hlaut Edduverðlaunin fyrir besta leikna sjónvarpsefnið.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími