Einar Bjartur Egilsson hóf píanónám 7 ára í Tónlistarskólanum í Reykjahlíð við Mývatn. Síðar fluttist hann til Reykjavíkur og stundaði nám í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Listaháskóla Íslands. Hann útskrifaðist þaðan vorið 2013 og lék meðal annars einleik í píanókonsert F. Poulencs með Sinfóníuhljómsveit Íslands það ár.
Frá 2013 – 2015 stundaði hann meistaranám í Konservatoríinu í Maastricht, Hollandi. Einar hefur samið tónlist fyrir nokkrar stuttmyndir og síðla árs 2015 gaf hann út hljómplötuna Heimkoma með eigin tónsmíðum sem fékk góðar viðtökur. Hann hefur spilað á tónlistarhátíðum í Hollandi og á Íslandi og starfað með ýmsum kórum bæði þar og hér heima.
Núverið starfar Einar aðallega sem píanóleikari með ýmsum tónlistarmönnum, nemendum og kórum. Hann heldur tónleika reglulega ásamt því að spila einleiksverk annað slagið. Undanfarin ár hefur hann gefið út tvær hljómplötur með píanóverkum eftir svissneska tónskáldið Frank Baumann og gaf út breiðskífuna Kyrrð með eigin verkum sumarið 2022.