Christina gerir búninga fyrir Frost í Þjóðleikhúsinu. Hún lauk BA-prófi í búningahönnun frá Wimbledon School of Art hjá University of Surrey í London og mastersprófi frá Kunsthøgskolen i Oslo. Hún hefur unnið árum saman að búningahönnun fyrir öll helstu leikhús Noregs, og hefur hannað búninga fyrir kvikmyndir og sjónvarpsverkefni í Noregi, Bretlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Meðal verkefna í leikhúsi má nefna Frost, Oslo, Tenk om og Charlie og sjokoladefabrikken hjá Det Norske Teatret, Pan og Diktatoren hjá Rogaland Teater, Kristin Lavransdatter og Morgenstjernen hjá Den Nationale Scene, Mio min Mio og Nøtteknekkeren hjá Trøndelag Teater, Alice i Vidunderland hjá Nationaltheatret og The Mute hjá Stavanger Symfoniorkester. Hún hefur tvívegis hlotið Hedduverðlaunin.