Óperuakademían gefur ungu tónlistarfóki tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu

Nýstofnuð Ópera og söng- og tónlistarskólar landsins hafa nú tekið höndum saman um stofnun Óperuakademíunnar. Markmiðið er að skapa öflugan vettvang þar sem ungt tónlistar- og sviðslistafólk getur öðlast reynslu af starfsumhverfi óperulistar og kynnst þeim faglegu vinnubrögðum sem tíðkast í óperu og sviðslistum.
Fyrsta uppsetning Óperuakademíunnar verður Draumur á Jónsmessunótt (A Midsummer Night’s Dream) eftir Benjamin Britten, sumarið 2027. Nemendum gefst þar einstakt tækifæri til að taka þátt í fullri óperuuppfærslu, hvort heldur á sviðinu eða í hljómsveitinni.
Í tengslum við verkefnið býður Óperan upp á tvö námskeið: sex vikna samfellt námskeið fyrir söngvara og tveggja vikna námskeið fyrir hljóðfæraleikara. Að auki verður boðið upp á „masterclass“ námskeið og annan faglegan stuðning.
Lesa nánar