Nýstofnuð Ópera og söng- og tónlistarskólar landsins taka höndum saman um stofnun Óperuakademíunnar. Markmiðið er að skapa öflugan vettvang þar sem ungt tónlistar- og sviðslistafólk getur öðlast reynslu af starfsumhverfi óperulistar og kynnst þeim faglegu vinnubrögðum sem tíðkast í óperu og sviðslistum.
Fyrsta uppsetning Óperuakademíunnar verður Draumur á Jónsmessunótt (A Midsummer Night’s Dream) eftir Benjamin Britten, sumarið 2027. Nemendum gefst þar einstakt tækifæri til að taka þátt í fullri óperuuppfærslu, hvort heldur á sviðinu eða í hljómsveitinni.
Í tengslum við verkefnið býður Óperan upp á tvö námskeið: sex vikna samfellt námskeið fyrir söngvara og tveggja vikna námskeið fyrir hljóðfæraleikara. Að auki verður boðið upp á „masterclass“ námskeið og annan faglegan stuðning.
Ungt tónlistarfólk stígur sín fyrstu skref í faglegu umhverfi
Óperan ber ábyrgð á listrænni framkvæmd og uppsetningu verksins. Æfingar hefjast í maí 2027 fyrir söngvara og í júní fyrir hljóðfæraleikara undir stjórn tónlistarstjóra og leikstjóra verkefnisins. Frumsýning er fyrirhuguð í lok júní 2027 í Þjóðleikhúsinu.
Verkefnið er hugsað til að gefa ungu tónlistarfólki úr sem flestum tónlistarskólum landsins tækifæri til að stíga sín fyrstu skref í faglegu óperuumhverfi, vinna með reyndu listafólki og öðlast dýrmæta reynslu. Akademían er opin öllum umsækjendum.
Framhaldsskólanemum gefst kostur á að fá 5 framhaldsskólaeiningar fyrir þátttöku í námskeiðinu
Þátttakendur fá markvissa þjálfun í undirbúningi og flutningi óperu og vinna með reyndu fagfólki að öllum helstu þáttum uppsetningarinnar. Söngvarar fá meðal annars tækifæri til að undirbúa og flytja heilt óperuhlutverk, með áherslu á tónlistarlega túlkun, sviðsframkomu, textaframburð og tjáningu. Hljóðfæraleikarar taka þátt í hljómsveit verkefnisins og öðlast reynslu af flutningi heillar óperu, samspili og vinnu undir stjórn tónlistarstjóra.