/
Undir sömu stjörnu
Opnunarviðburður Óperunnar á Íslandi í Hofi

Glæsilegur opnunarviðburður Óperunnar í Hofi sem ferðast víðsvegar um landið í kjölfarið

Nýstofnuð ópera mun hefja starfsemi sína með glæsilegum viðburði sem fengið hefur nafnið Undir sömu stjörnu. Viðburðirnir, sem verða alls 5 talsins, verða í boði víða um land. Fjörið byrjar í Hofi á Akureyri þann 18. október, þar sem boðið verður upp á hátíðlega stund. Í framhaldinu verður viðburðurinn flutt víða um land, á Eskifirði, í Skálholti, Reykjanesbæ og á endanum í Þjóðleikhúsinu. Þetta er í takt við stefnu hinnar nýju Óperu en lagt er upp með að starfsemin verði um allt land – enda ópera þjóðarinnar allrar. Söngvarar Óperunnar og leikarar Þjóðleikhússins koma fram öll kvöldin en á hverjum stað munu sinfóníuhljómsveitir, kórar og gestasöngvarar úr nærumhverfi einnig láta ljós sitt skína.

Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Skyldi það hafa verið sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja? Saga óperunnar verður rakin, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum, og tengd við íslenska menningarsögu. Söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er hér fléttað saman á léttleikandi hátt.

Frumsýning!
18. október – Hof, Akureyri

Stjórnandi: Richard Schwennicke
Söngvarar:
Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason
Kórar: Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands
Gestasöngvari: Jónína Björt Gunnarsdóttir
Hljómsveitarstjóri: Richard Schwennicke
Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Ljósahönnun: Lárus Heiðar Sveinsson

Kaupa miða Nánar

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og norðlenskir kórar í öndvegi

Frumsýnt verður í Hofi á Akureyri og þar verður mikið um dýrðir. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands leikur við þetta tækifæri ásamt Kammerkór Norðurlands og Kór Akureyrarkirkju. Hljómsveitin hefur vaxið mikið undanfarin ár, sem hluti af rekstri Menningarfélags Akureyrar. Fyrir utan að hafa í hávegum flutning á klassískri tónlist hefur hljómsveitin á síðustu árum sérhæft sig í upptökum á kvikmyndatónlist og stuðlað að frumflutningi á nýrri íslenskri sinfónískri tónlist. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands brýtur múra milli tónlistarstefna og leitast við að brúa bilið milli áheyrenda og flytjenda með samstarfi við listamenn úr öðrum geirum tónlistarlífsins.

25. október –  Eskifjörður

Eskifjarðarkirkja kl. 16.00

Stjórnandi: Richard Schwennicke
Söngvarar:
Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason
Kórar: Óperukór Austurlands, Kammerkór Norðurlands
Hljómsveit: Sinfoníuhljómsveit Austurlands
Gestasöngvari: Hlín Pétursdóttir Behrens

Kaupa miða

1. nóvember –  Reykjanes

Hljómahöll kl. 16.00

Stjórnandi: Jóhann Smári Sævarsson
Söngvarar:
Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason
Hljómsveit: Hljómsveit Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Kór: Hátíðarkór Norðuróps
Gestasöngvari: Martyna Patrycja Gesella

Kaupa miða

8. nóvember –  Skálholt

Skálholtsdómkirkja kl. 16.00

Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson
Söngvarar:
Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason
Kórar: Kammerkór Norðurlands, Skálholtskórinn, Kammerkór Rangæinga
Hljómsveit: Sinfoníuhljómsveit Suðurlands

Gestasöngvari: Gunnlaugur Bjarnason

Kaupa miða

15. nóvember –  Þjóðleikhúsið

Stóra sviðið kl. 20.00

Stjórnandi: Richard Schwennicke
Söngvarar:
Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson.
Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason
Kór: Kór Óperunnar
Hljómsveit: Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

 

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími