Jara Hilmarsdóttir ráðin framleiðslu og verkefnastjóri Óperunnar
Óperan hefur ráðið Jöru Hilmarsdóttur í starf framleiðslu- og verkefnastjóra. Jara verður einn af lykilstarfsmönnum í uppbyggingarferli þessarar nýju óperustofnunar og mun gegna mikilvægu hlutverki í skipulagningu og framkvæmd verkefna Óperunnar í nánu samstarfi við óperustjóra, tónlistarstjóra og aðra samstarfsaðila.
Jara lauk BA-prófi í klassískum söng frá Hochschule für Musik und Tanz Köln í Þýskalandi og MA-prófi í framleiðslu- og sýningarstjórn frá Guildford School of Acting í Bretlandi. Hún hefur fjölbreytta reynslu af framleiðsluferli sviðslista, bæði hér á landi og erlendis. Jara hefur gegnt margvíslegum störfum við Þjóðleikhúsið frá árinu 2013 og komið að fjölda ólíkra verkefna, auk þess sem hún hefur unnið að óperu- og tónlistarverkefnum með ólíkum samstarfsaðilum. Þá hefur hún starfað sem sýningarstjóri hjá Grange Park Opera í Bretlandi og öðlast þannig reynslu af alþjóðlegum vettvangi.
Í starfi sínu mun Jara hafa umsjón með fjölbreyttum þáttum í undirbúningi og framkvæmd verkefna Óperunnar, allt frá skipulagi og áætlanagerð til samhæfingar listafólks, framleiðsludeilda og samstarfsaðila.