27. Jún. 2026

Sex íslenskum söngvurum boðin ráðning við Óperuna

Óperan hefur ákveðið að bjóða eftirtöldum einsöngvurum ráðningu frá 15. september: Kristínu Einarsdóttur Mäntylä, sópran, Hildigunni Einarsdóttur, messó-sópran, Gunnari Birni Jónssyni, tenór, og Kristjáni Inga Jóhannessyni, barítón. Þau munu taka þátt í opnunarviðburðinum Undir sömu stjörnu sem verður frumsýndur í Hofi á Akureyri 18. október nk. og síðan sýndur víðar um landið. Jafnframt hefur Hörpu Ósk Björnsdóttur, sópran, og Ragnari Pétri Jóhannssyni, bassa, verið boðin ráðning við Óperuna frá 1. janúar 2027.

Allir þessir sex söngvarar munu taka þátt í lykilverkefni komandi leikárs Óperunnar, Falstaff eftir Giuseppe Verdi, sem verður frumsýnt 6. mars 2027. Þar mun áhorfendum gefast tækifæri til að sjá og heyra fjölbreyttan hóp íslenskra söngvara sem hafa vakið athygli fyrir störf sín bæði heima og erlendis.

Með þessum áformum undirstrikar Óperan metnað sinn til að efla starfsskilyrði íslenskra söngvara, en framundan er spennandi starfsár þar sem íslenskir söngvarar verða í forgrunni í fjölbreyttum verkefnum á vegum Óperunnar.

Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími