17. Apr. 2026

Harrý og Heimir leysa svakaleg svakamál í Kjallaranum

Laugardaginn 18. apríl frumsýna Harrý og Heimir í samstarfi við Þjóðleikhúsið glænýtt og æsispennandi svakamálaleikrit, Morð skulu standa. Nú verður Leikhúskjallarinn, með alla sína reykmettuðu skugga og skúmaskot, vettvangur æsilegra rannsókna þeirra. Leikarar Þjóðleikhússins virðast vera að hverfa sporlaust og okkar allra bestu menn eru að sjálfsögðu fengnir til þess að rannaka málið.

Kaupa miða

Sem fyrr eru það þeir Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson sem fara með hlutverk spæjaranna auk þess sem Örn Árnason reynir hvað hann getur að halda utan um þræðina í hlutverki sögumanns. Þremenningarnir eru einnig höfundar verksins en leikstjóri er Þröstur Leó Gunnarsson.

Nú eru liðin 36 ár síðan Harrý og Heimir ruddust inn á leiksvið í söngleiknum Örfá sæti laus, en skutu aftur upp kollinum í sýningunni Með öðrum morðum, sem naut gífurlegra vinsælda. Áður höfðu þeir smogið inn í hlustir landsmanna með eftirminnilegum hætti í fjölda æsispennandi og sprenghlægilegra sakamálaleikrita í útvarpi.

Það var seint um kvöld. Afar seint um kvöld. Reyndar svo seint að það var orðið snemma morguns. Harrý Rögnvalds einkaspæjari sat á skrifstofu sinni ásamt Heimi Schnitzel, hundtryggum aðstoðarmanni sínum. (Voff voff voff). Þetta var reyndar ekki í fyrsta sinn sem Harrý og Heimir sátu saman með brakandi heilasellur.

„Getur verið að við fáumst næst við glæpamál í Þjóðleikhúskjallaranum?“ spurði Heimir.
„Það gæti hugsast, það fer eftir ýmsu,“ svaraði Harrý.
„Ertu ekki að meina að það gæti spögulerast?“
„Þegiðu, Heimir.“
„Alveg vissi ég að þú myndir segja þetta, Harrý,“ sagði Heimir.

Höfundar og leikarar

Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason

Listrænir stjórnendur og aðstandendur

Leikstjórn
Þröstur Leó Gunnarsson
Lýsing
Haraldur Levi Jónsson
Myndvörpun
Ásta Jónína Arnardóttir
Aðstoð við framleiðslu
María Dís Cilia
Hljóðmynd
Aron Þór Arnarsson
Aðstoð við hljóðmynd
Jóhannes Sigurðsson
Aðstoð við leikmynd og leikmuni
Valur Hreggviðsson, Ásta S. Jónsdóttir, Bjarni Þór Sigurbjörnsson
Yfirumsjón búninga
Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími