Improv Ísland fagnar 10 ára afmæli

Leikhópurinn Improv Ísland fagnaði tíu ára afmæli sínu nú fyrir helgi með hátíðlegri spunasýningu eins og þeim einum er lagið. Gestir veltust um af hlátri niðri í Þjóðleikhúskjallara rétt eins og þeir hafa gert öll tíu árin sem hópurinn hefur sýnt spunaleikhús. Forsetahjónin sáu hátíðlega sýningu hópsins og óskuðu listafólkinu til hamingju, ásamt Þjóðleikhússtjóra og fleiri frábærum gestum.
Improv Ísland eru brautryðjendur í spunalilst á Íslandi. Hver sýning er frumsýning og lokasýning á brakandi fersku gríni sem verður til á staðnum. Um tuttugu spunaleikarar skiptast á að sýna ólíkar tegundir af spuna öll miðvikudagskvöld í Þjóðleikhúskjallaranum.
Þjóðleikhúsið þakkar Improv Ísland fyrir dýrmætt samstarf og óskar hópnum frekari hláturs, velgengni farsældar um ókomna tíð.
Nánar um Improv