Tvö spennandi störf auglýst í Þjóðleikhúsinu

Í kjölfar skipulagsbreytinga verður ráðið í tvö ný störf í Þjóðleikhúsinu. Auglýst er eftir framkvæmdastjóra fjármála og reksturs og mannauðsstjóra. Samhliða er staða miðlægs framkvæmdastjóra lögð niður. Opið er fyrir umsóknir til 14. október.
Nú í október ganga í gegn breytingar á skipulagi Þjóðleikhússins en þær eru gerðar til að styrkja leikhúsið til enn frekari sóknar á næstu misserum og bregðast við breytingum í umhverfi leikhússins. Kynnt er flatara stjórnskipulag en áður sem á að skila aukinni skilvirkni og hagkvæmni. Nýtt óperusvið er búið til og aukin áhersla lögð á öfluga fjármálastjórn.
Sjá nánar um störfin:
Sjá nánar um stöður og umsóknarform:
Framkvæmdastjóri MannauðsstjóriNánar um skipulagsbreytingar:
Lesa frétt