Rót
Ný ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna um rætur, samkennd og sögurnar sem geta heilað okkur.
Verkið gerist sumarið 1995. Ungur drengur í litlum íslenskum bæ er að fara að hitta ömmu sína, „abuelu“ sína, í fyrsta sinn. Hún kemur til landsins frá Paragvæ eins og stormsveipur af litadýrð og söng, með sögur, minningar og smá galdra í farteskinu. Með komu hennar tekur hverdagurinn að breytast: eldhús breytist í draumalandslag og fuglarnir flytja okkur raddir frá fjarlægum stöðum.
Sagan er sögð með augum unga drengsins og mannsins sem hann síðar verður. Rót ferðast á milli fortíðar og nútíðar, Íslands og Suður-Ameríku, raunveruleika og ímyndunarafls. Í gegnum söng, brúðuleik og heilandi sjónræna þætti er kannað í sýningunni hvað það þýðir að alast upp á mörkum ólíkra heima, bera fjölbreyttar sögur innra með sér og uppgötva að enginn er helmingur af neinu — við erum öll heil.
Með hlátri, undrun og blíðu fagnar Rót fegurðinni sem býr í fjölskyldum og dirfskunni sem þarf til að standa með því sem við erum. Þessi áhrifamikla og sjónræna sýning er búin til af alþjóðlegu teymi listamanna frá Paragvæ, Slóvakíu, Bandaríkjunum, Tékklandi, Dóminíska lýðveldinu, Japan, Bretlandi og Íslandi og minnir okkur á að sögur okkar, hversu lítið sem þær láta yfir sér, eru það sem tengir okkur saman.
Hjartnæm og hugmyndarík upplifun fyrir fjölskyldur og unga áhorfendur.
Aldursviðmið: 8 ára og eldri.
Frumsýning hjá Leikfélagi Akureyrar 25. apríl og sýningar í Þjóðleikhúsinu í maí og júní, í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík.
A new poetic puppet play for families about roots, belonging, and the stories that make us whole.
It is the summer of 1995, and a young boy in a small Icelandic town is about to meet his grandmother, his Abuela, for the first time. She arrives from Paraguay like a burst of colour and song, bringing with her a suitcase filled with stories, memories, and a touch of magic. With her arrival, the ordinary world begins to shift: kitchens turn into landscapes of dreams, and the birds carry voices from faraway places.
Told through the eyes of the boy, and the man he becomes, Rót moves between past and present, Iceland and South America, reality and imagination. Through song, puppetry, and striking visual theatre, the play explores what it means to grow up between worlds, to carry different histories within you, and to discover that no one is half of anything — we are all whole.
Amid laughter, wonder, and moments of quiet tenderness, Rót celebrates the beauty of family and the courage to embrace who we are. Created by an international team of artists from Paraguay, Slovakia, the United States, the Czech Republic, the Dominican Republic, Japan, the United Kingdom, and Iceland, this moving and visually rich performance reminds us that our stories, no matter how small, are what connect us.
A heartfelt, imaginative experience for families and young audiences. Recommended for ages 8 and up.
Leikhópurinn Handbendi
Leikhópurinn Handbendi er margverðlaunaður brúðuleikhúshópur sem hefur heimilisfesti á Hvammstanga en ferðast víða um heim með sýningar sínar. Handbendi hlaut Eyrarrósina, viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, árið 2021.
Listafólk
Rót eftir Handbendi Brúðuleikhús
Leikstjórn og brúðuhreyfingar: Greta Clough.
Tónlist: Paul Mosely.
Sviðshreyfingar: Chantelle Carey.
Leikmynd, leikmunir og búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir og Auður Ösp Guðmundsdóttir.
Brúðuhönnun og smíði: Aya Nakamura og Katanari.
Lýsing: Friðþjófur Þorsteinsson.
Brúðuleikari og dramatúrg: Juraj Hubinák.
Framleiðandi: Martin L. Sörensen.
Flytjendur: Juraj Hubinák, Sigurður Arent Jónsson, Tessa Rivarola, Rebecca Hidalgo, Viktoría Sigurðardóttir.
Handbendi í samstarfi við Þjóðleikhúsið, Leikfélag Akureyrar og Listahátíð í Reykjavík. Verkefnið var styrkt af Sviðslistasjóði.