20. Des. 2024

Yerma. Frumsýning á annan í jólum

Jólasýning Þjóðleikhússins í ár er Yerma. Leiftrandi, áleitið og átakanlegt nútímaverk sem hefur slegið rækilega í gegn. Leikritið er byggt á samnefndu meistaraverki Federico García Lorca frá árinu 1934 sem gerist í spænsku sveitasamfélagi. Höfundur leikritsins, hinn heimsþekkti leikhúsmaður Simon Stone, flytur atburðarásina inn í borgarsamfélag samtímans og frumkraftarnir í verkinu birtast okkur í nýju ljósi.

 

 

Gísli Örn ekki einhamur

Leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson hefur jafnan mörg járn í eldinum. Stutt er síðan sýningin fallega, Jólaboðið, fór aftur á svið með endurnýjuðum leihópi. Stórsöngleikurinn Frost gengur enn fyrir fullu húsi en sýningnum lýkur í janúar. Í Yermu  leiðir Gísli saman einstaklega sterkan hóp leikara í fádæma kraftmiklu verki. Það er óhætt að lofa magnaðri kvöldstund. Leikarar: Nína Dögg Filuppusdóttir, Björn Thors, Ilmur Kristjánsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson og Vala Kristín Eiríksdóttir.

Hvernig bregst kona við ef lífið verður ekki við hennar heitustu bón?

Hún er kona í blóma lífsins, sjálfsörugg og opinská, eldklár, ákveðin og óhefluð. Henni gengur vel í starfi sínu og er að flytja inn í nýtt hús með manninum sem hún elskar. Það er bara eitt sem vantar – barn. Kærastinn er til í það, og það er ekki eftir neinu að bíða! En það sem virðist svo eðlilegur hluti af lífinu reynist ekki sjálfsagt. Eftir því sem biðin lengist virðist einhver ofursterkur kraftur ná sífellt öflugri tökum á henni. Löngun verður að þrá, þráin að þráhyggju og smám saman missir hún tökin.

Nóg að gera hjá Nínu Dögg

Nína Dögg Filippusdóttir fer með hlutverk Yermu. Hún útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2001 og hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hún er einnig handritshöfundur og kvikmyndaframleiðandi. Hún er meðal stofnenda Vesturports og lék m.a. í Rómeó og Júlíu, Hamskiptunum og Faust hérlendis sem erlendis. Hún var einn framleiðenda, höfunda og leikara í sjónvarpsþáttaröðunum Verbúðinni og Föngum. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar og Eddunnar. Framleiðsla er nú á lokastigi á þáttunum Vigdís, en þar fer Nína með hlutverk Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrum forseta lýðveldisins. Fyrsti þátturinn fer í loftið 1. janúar á RÚV.

Gulli Briem semur tónlist fyrir leikhús í fyrsta sinn

Tónlistin í Yermu mun skipa stóran sess en tónhöfundur  er enginn annar en Gulli Briem. Hann mun einnig taka þátt í sýningunniu og verður á sviðinu ásamt tveimur öðrum hjóðfæraleikurum. Gulli Briem er stofnmeðlimur og trommuleikari hljómsveitarinnar Mezzoforte, sem naut mikillar velgengni um miðjan níunda áratuginn með plötunni „Surprise Surprise“ og vinsælu smáskífunni „Garden Party“. Mezzoforte heldur áfram að ferðast um allan heim og leika fyrir djass – fönk aðdáendur og tónlistaráhugamenn.

Gulli hefur hrifið tónlistaraðdáendur með sólóverkefnum sínum, Earth Affair og Liberté. Gulli hefur fimm sinnum verið tilnefndur sem trommuleikari ársins á Íslandi og hlotið titillinn jafn oft. Ásamt Mezzoforte hefur Gulli unnið með Bubba Morthens, Gunnari Þórðarsyni og fleiri íslenskum listamönnum auk Madonnu í tveimur aðskildum verkefnum, sem og Steve Hackett gítarleikar Genesis. Hann hefur leikið inn á fjórar plötur með ungversku heimstónlistar sveitinni Djabe og farið í tónleikaferðir með þeim og Steve Hackett.

Nánar um Yermu

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími