13. Nóv. 2024

Jólaboðið á aðventunni á Stóra sviðinu

Sýningin Jólaboðið í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar verður sýnd frá og með fim. 14. nóvember á Stóra sviðinu. Sýningin er sannkallaður konfektkassi fyrir leikarana sem fá að túlka ýmsar persónur innan sömu fjölskyldunnar sem heimsótt er reglulega á aðfangadag í 100 ár.

Kaupa miða


Nýr leikhópur spreytir sig í sannkallaðri leikarasýningu
Jólaboðið er nú endurfrumsýnt með nýjum leikhópi á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Sýningin hefur áður verið á fjölum leikhússins með en nú er það glænýr leikhópur sem túlkar þessa fallegu og skemmtilegu sýningu. Í hópnum eru margir af okkar fremstu leikurum: Ebba Katrín Finnsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Oddur Júlíusson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og Örn Árnason.


List og töfrar leikarans heilla okkur öll á aðventunni
Leikararnir túlka ólíkar persónur á ýmsum aldursskeiðum en í sýningunni fylgjumst við með sögu íslenskrar fjölskyldu með því að gægjast inn í stofu á aðfangadagskvöld, reglulega, á einnar aldar tímabili. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir og skrifar handritið ásamt Melkorku Tekla Ólafsdóttur. Jólaboðið byggir á verki Tyru Tønnessen, Julemiddag, sem er innblásið af The Long Christmas Dinner eftir Thornton Wilder.
Sprellfjörug og frumleg en um leið hjartnæm sýning 
Í Jólaboðinu býðst okkur að fylgjast með sögu íslenskrar fjölskyldu með því að gægjast inn í stofu á aðfangadagskvöld, reglulega, á einnar aldar tímabili. Við fylgjumst með fjölskyldunni koma saman á jólunum, á ólíkum tímum, og upplifum með henni umrót heillar aldar; seinni heimsstyrjöldina, breytingar í sjávarútvegi, hippatímabilið, tæknivæðingu þjóðfélagsins og um leið vandræði fjölskyldunnar við að laga sig að breyttum háttum og innbyrðis venjum. Fjölskyldan reynir að halda í hefðirnar en hin óhjákvæmilega framrás tímans setur hlutina úr skorðum og vekur sífellt nýjar spurningar og ný átök.

Gísli Örn Garðarsson ekki einhamur
Gísli Örn Garðarsson hefur sett upp fjölda leiksýninga á Íslandi og erlendis, sem höfundur og leikstjóri, og hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann hefur starfað við fjölda virtra leikhúsa á Íslandi, í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og víðar. Gísli Örn er auk þess einn af stofnendum Vesturports. Aðspurður um efni sýningarinnar segir hann: „Efniviðurinn sem við vinnum úr er jafn litríkur og jólin sjálf. Þetta eru sannar sögur – skemmtilegar, átakanlegar, ótrúlegar… um okkur sjálf og aðrar íslenskar fjölskyldur.“
Listrænir stjórnendur sem hafa marga fjöruna sopið
Það er valinn maður í hverju rúmi þegar kemur að aðstandendum sýningarinnar. Dramatúrg sýningarinnar er Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Leikmyndahöfundur er Börkur Jónsson sem hefur um árabil starfað með Gísla. Helga I. Stefándsóttir hannar búninga, Halldór Örn Óskarsson hannar lýsingu, Kristján Sigmundur Einarsson er hljóðhönnuður og Salka Sól og Tómas Jónsson semja tónlistina. Í tenglsun við sýninguna var lagið Æskujól eftir þau tvö fyrrnefndu gefið út þegar verkið var sýnt upphaflega. Lagið er í anda sýningarinnar, hugljúft og smellið.

Salka Sól Eyfeld
Tónlist sýningarinnar
Það eru Salka Sól Eyfeld og Tómas Jónsson sem sömdu tónlistina við sýninguna – hér er lagið Æskujól úr Jólaboðinu:

Hlusta á Æskujól

Matur og leikhús eru dásamlegt kombó
Í tengslum við sýningar á Jólaboðinu er hægt að panta dýrindis jólasnittur og njóta þeirra á fráteknu borði í fallegum forsal leikhússins áður en sýningin hefst. Þjóðleikhúsið er nú í samstarfi við veitingahúsið Kastrup um framboð á veitingum. Það er tilvalið að tryggja sér ljúffengar veitingar og gera enn meira úr leikhúsheimsókninni. Einnig er hægt að fá jólaglögg og aðrar notalegar veitingar.

Skoða veitingar
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími