17. Okt. 2024

Frost söngleikjanámskeið dagana 26. – 27. október

Chantelle Carey Creative Arts í samstarfi við Þjóðleikhúsið býður uppá Frost – söngleikjanámskeið. Námskeiðið er byggt upp þannig að þátttakendur mæta eina helgi og fá tækifæri til þess að tileinka sér atriði úr sýningunni, bæði söng, leik og dans. Auk þess verður farið yfir hvernig prufuferli fer fram fyrir stórsýningar sem þessa.

Kennarar: Chantelle Carey, Vala Fannell og Birgir Þórisson. Námskeiðið er hugsað fyrir 7 – 15 ára og innifalið er skoðunarferð um húsið, leikhúsmiði á Frost sunnudaginn 27. okt., einnig vegleg leikskrá auk þess sem þátttakendur fá tækifæri til þess að skyggnast bak við tjöldin og hitta leikara og starsfólk sýningarinnar.

 

NÁNAR
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími