/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

William Shakespeare

Höfundur
/

William Shakespeare

William Shakespeare fæddist árið 1564 í Stratford-upon-Avon í Englandi. Eftir hann liggja fjórir tugir leikverka, sem talið er að hann hafi skrifað á árunum 1590-1613, auk ljóðmæla. Hans er getið sem leikara og leikritahöfundar í skrám leikflokksins Lord Chamberlain’s Men árið 1594, en flokkurinn var einn fremsti leikflokkur London á sínum tíma. Vitað er að Shakespeare starfaði með leikflokknum allt þar til hann dró sig í hlé árið 1612 og flutti heim til Stratford-upon-Avon. Þar dó hann árið 1616, 52ja ára að aldri. Talið er að Shakespeare hafi kvænst Anne Hathaway 18 ára gamall og átt með henni þrjú börn, en hún hafi orðið eftir í Stratford þegar hann hélt til London.

Mörg leikrit Shakespeares hafa verið sýnd á sviði íslenskra atvinnuleikhúsa, svo sem Þrettándakvöld, Vetrarævintýri, Kaupmaður í Feneyjum, Hamlet, Sem yður þóknast, Draumur á Jónsmessunótt, Júlíus Sesar, Rómeó og Júlía, Óþelló, Makbeð, Lér konungur, Snegla tamin, Ríkarður þriðji og Ofviðrið. (Sjá nánar á leikhusid.is). Einnig hafa áhugaleikfélög og Ríkisútvarpið flutt verk Shakespeares. Komið hefur út safn þýðinga Helga Hálfdanarsonar á leikritum Shakespeares, en einnig hafa þýtt leikrit skáldsins Þórarinn Eldjárn, Hallgrímur Helgason, Kristján Þórður Hrafnsson, Sölvi Björn Sigurðsson, Matthías Jochumson, Steingrímur Thorsteinsson, Indriði Einarsson, Sverrir Hólmarsson og Sigurður Grímsson.

Royal Shakespeare Company í Bretlandi er leikhús sem er staðsett í fæðingarbæ Shakespeares, Stratford-upon-Avon, og leggur megináherslu á uppsetningar á verkum Shakespeares. Á heimasíðu leikhússins, rsc.org.uk, er margt forvitnilegt að finna um skáldið. Einnig er gaman að heimsækja heimasíðu Globe-leikhússins í London, shakespearesglobe.com, sem byggt var árið 1997, en fyrirmynd þess er leikhús sem Shakespeare starfaði í.

 

Leikrit Shakespeares og sýningar á Íslandi

 

Hér að neðan er listi yfir leikrit Shakespeares. Ekki liggur fyrir óyggjandi vitneskja um nákvæman ritunartíma allra verkanna en listinn tekur mið af Encycoplædia Britannica, britannica.com. Getið er um sýningar á verkunum á fjölum íslenskra atvinnuleikhúsa og í Nemendaleikhúsi LÍ og LHÍ. Leikrit Shakespeares hafa einnig verið flutt af áhugaleikfélögum og í Ríkisútvarpinu.

 

1588–97 Love’s Labour’s Lost (Ástarglettur)

1589–92 Henry VI, Part 1 (Hinrik sjötti, fyrsta leikrit)

1589–92 Titus Andronicus (Titus/Títus Andróníkus)

  • Titus, Vesturport 2002, þýð. Helgi Hálfdanarson, leikstjórn og leikgerð: Björn Hlynur Haraldsson

1589–94 The Comedy of Errors (Allt í misgripum)

1590–92 Henry VI, Part 2 (Hinrik sjötti, annað leikrit)

1590–93 Henry VI, Part 3 (Hinrik sjötti, þriðja leikrit)

1590–94 The Taming of the Shrew (Ótemjan/Snegla tamin)

  • Ótemjan, LR 1981, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Þórhildur Þorleifsdóttir

1590–94 The Two Gentlemen of Verona (Herramenn tveir úr Verónsborg)

1592–94 Richard III (Ríkharður III/Ríkarður þriðji)

  • Ríkharður III, Borgarleikhúsið 2018, þýð. Kristján Þórður Hrafnsson, lstj. Brynhildur Guðjónsdóttir
  • Ríkarður þriðji, Þjóðleikhúsið 2003, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Rimas Tuminas
  • Ríkarður þriðji, Þjóðleikhúsið 1986, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. John Burgess

1594–96 King John (Jóhann landlausi)

1594–96 Romeo and Juliet (Rómeó og Júlía)

  • Rómeó og Júlía, Þjóðleikhúsið 2021, þýð. Harpa Rún Kristjánsdóttir og Jón Magnús Arnarsson, lstj. og leikgerð: Þorleifur Örn Arnarsson
  • Rómeó og Júlía, Vesturport 2002, þýð. Hallgrímur Helgason, lstj. og leikgerð Gísli Örn Garðarsson, meðlstj. Agnar Jón Egilsson. Enduruppsett í Borgarleikhúsinu 2010 og 2012.
  • Rómeó og Júlía, Þjóðleikhúsið 1991, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Guðjón Pedersen
  • Rómeó og Júlía, LR 1964, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Tomás Mac Anna

1595–96 A Midsummer Night’s Dream (Jónsmessunæturdraumur/Draumur á Jónsmessunótt/Jónsmessudraumur)

  • Jónsmessunæturdraumur, Þjóðleikhúsið 2019, þýð. Þórarinn Eldjárn, lstj. Hilmar Jónsson
  • Draumur á Jónsmessunótt, Nemendaleikhús LHÍ 2013, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Stefán Jónsson
  • Draumur á Jónsmessunótt, Þjóðleikhúsið 2000, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Baltasar Kormákur
  • Draumur á Jónsmessunótt, Nemendaleikhús LÍ 1993, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Guðjón Pedersen
  • Draumur á Jónsmessunótt, LR í samvinnu við Nemendaleikhús LÍ 1985, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Stefán Baldursson
  • Draumur á Jónsmessunótt, LA 1967, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Ragnhildur Steingrímsdóttir
  • Jónsmessudraumur, Þjóðleikhúsið 1955, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Walter Hudd

1595–96 Richard II (Ríkarður annar)

1596–97 The Merchant of Venice (Kaupmaður í Feneyjum/Kaupmaðurinn í Feneyjum)

  • Kaupmaður í Feneyjum, Þjóðleikhúsið 1974, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Stefán Baldursson og Þórhallur Sigurðsson
  • Kaupmaðurinn í Feneyjum, LR 1945, þýð. Sigurður Grímsson, lstj. Lárus Pálsson

1596–97 Henry IV, Part 1 (Hinrik fjórði, fyrra leikrit)

1597–98 Henry IV, Part 2 (Hinrik fjórði, síðara leikrit)

1597–1601 The Merry Wives of Windsor (Vindsór-konurnar kátu)

1598–99 Much Ado About Nothing (Ys og þys útaf engu)

1598–1600 As You Like It (Sem yður þóknast)

  • Sem yður þóknast, Þjóðleikhúsið 1996, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Guðjón Pedersen
  • Sem yður þóknast, Þjóðleikhúsið 1952, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Lárus Pálsson
  • Hvað sem þið viljið, Þjóðleikhúsið 2023, þýð. Karl Ágúst Úlfsson, lstj. Ágústa Skúladóttir

1599 Henry V (Hinrik fimmti)

1599–1600 Julius Caesar (Júlíus Sesar)

  • Júlíus Sesar, Þjóðleikhúsið 1959, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Lárus Pálsson

1599–1601 Hamlet

  • Hamlet, útskriftarhópur leikaradeildar Listaháskóla Íslands í Þjóðleikhúsinu 2022, þýð. Þórarinn Eldjárn, lstj. Bergur Þór Ingólfsson
  • Hamlet, LR 2014, þýð. HH og Jón Atli Jónasson, lstj. Jón Páll Eyjólfsson
  • Hamlet, LA 2002, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Sveinn Einarsson
  • Hamlet, Þjóðleikhúsið 1997, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Baltasar Kormákur
  • Hamlet, LR 1988, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Kjartan Ragnarsson
  • Hamlet, Þjóðleikhúsið 1963, þýð. Matthías Jochumsson, lstj. Benedikt Árnason
  • Hamlet, LR 1949, þýð. Matthías Jochumsson, lstj. Edvin Tiemroth

1600–02 Twelfth Night (Þrettándakvöld/Þrettándakvöld eða… hvað sem þér viljið)

  • Þrettándakvöld eða… hvað sem þér viljið, Þjóðleikhúsið í samstarfi við Nemendaleikhús LHÍ 2009, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Rafael Bianciotto
  • Þrettándakvöld, Nemendaleikhús LÍ 1987, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Þórhallur Sigurðsson
  • Þrettándakvöld, Þjóðleikhúsið 1967, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Benedikt Árnason
  • Þrettándakvöld, LA 1963, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Ágúst Kvaran
  • Þrettándakvöld, LR 1933, þýð. Indriði Einarsson, lstj. Brynjólfur Jóhannesson
  • Þrettándakvöld, LR 1926, þýð. Indriði Einarsson, lstj. Indriði Waage

1601–02 Troilus and Cressida (Tróílus og Kressíta)

1601–05 All’s Well That Ends Well (Allt er gott sem endar vel)

1603–04 Measure for Measure (Líku líkt)

1603–04 Othello (Óþelló)

  • Óþelló, Þjóðleikhúsið 2016, þýð. Hallgrímur Helgason, lstj. og leikgerð Gísli Örn Garðarsson
  • Óþelló, Nemendaleikhús LÍ 1990, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Guðjón Pedersen, leikgerð: Guðjón Pedersen, Hafliði Arngrímsson og Gretar Reynisson
  • Óþelló, Þjóðleikhúsið 1972, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. John Fernald

1605–06 King Lear (Lér konungur)

  • Lér konungur, Þjóðleikhúsið 2010, þýð. Þórarinn Eldjárn, lstj. Benedict Andrews
  • Lér konungur, LR 2000, þýð. Steingrímur Thorsteinsson, endurskoðun þýðingar: Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, lstj. Guðjón Pedersen
  • Lér konungur, Þjóðleikhúsið 1977, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Hovhanness I. Pilikian

1605–08 Timon of Athens (Tímon Aþeningur)

1606–07 Macbeth (Macbeth/Makbeð)

  • Macbeth, Borgarleikhúsið 2023, lstj. Uršulė Barto, þýð. Kristján Þórður Hrafnsson
  • Macbeth, Þjóðleikhúsið 2012, lstj. Benedict Andrews, þýð. Þórarinn Eldjárn
  • Macbeth, vinnusmiðja leikara í Þjóðleikhúsinu 2008, texti byggður á þýðingu Matthíasar Jochumssonar, lstj. Vignir Rafn Valþórsson og Stefán Hallur Stefánsson
  • Macbeth, Frú Emilía 1994, þýð. Matthías Jochumsson, lstj. Guðjón Pedersen, leikgerð: Hafliði Arngrímsson, Gretar Reynisson og Guðjón Pedersen
  • Macbeth, Alþýðuleikhúsið 1989, þýð. Sverrir Hólmarsson, lstj. Inga Bjarnason
  • Makbeð, LR 1977, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Þorsteinn Gunnarsson

1606–07 Antony and Cleopatra (Anton og Kleópatra)

1606–08 Pericles (Períkles)

1608 Coriolanus (Kóríólanus)

1608–10 Cymbeline (Simlir konungur)

1609–11 The Winter’s Tale (Sumarævintýri/Vetrarævintýri)

  • Sumarævintýri, LR 2003, þýð. Indriði Einarsson, lstj. Benedikt Erlingsson, leikgerð: Leikhópurinn
  • Vetrarævintýri, LR 1926, þýð. Indriði Einarsson, lstj. Indriði Waage

1611 The Tempest (Ofviðrið)

  • Ofviðrið, LR í samstarfi við Íslenska dansflokkinn 2010, þýð. Sölvi Björn Sigurðsson, lstj. Oskaras Koršunovas
  • Ofviðrið, Nemendaleikhús LHÍ 2000, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Rúnar Guðbrandsson
  • Ofviðrið, Þjóðleikhúsið 1989, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Þórhallur Sigurðsson

1613 Henry VIII (Hinrik áttundi)

Nokkrar sýningar byggðar á verkum Shakespeares:

  • Shakespeare verður ástfanginn, leikverk byggt á kvikmyndahandriti eftir Marc Norman og Tom Stoppard, aðlögun að leiksviði: Lee Hall. Þjóðleikhúsið, 2019, þýð. Kristján Þórður Hrafnsson, lstj. Selma Björnsdóttir.
  • Hamlet litli, LR 2014, leikgerð og lstj. Bergur Þór Ingólfsson
  • Hvílíkt snilldarverk er maðurinn! Þjóðleikhúsið 2011, þýð. Helgi Hálfdanarson, lstj. Benedikt Árnason, handrit: Sigurður Skúlason og Benedikt Árnason
  • Macbeth, Íslenska óperan 2003, ópera eftir Giuseppe Verdi, lstj. Jamie Hayes
  • Sjeikspír eins og hann leggur sig, Sjeikspírvinafélag Reykjavíkur (SVR) og Leikfélag Íslands 2000, höfundar: Borgeson, Long og Singer, þýð. Gísli Rúnar Jónsson, lstj. Benedikt Erlingsson
  • Ys og þys út af engu, Íslenski dansflokkurinn 1977, lstj. og danshöfundur: Natalie Konjus
  • Öll veröldin er leiksvið, LR 1972, þýð. Helgi Hálfdanarson, leikstjórn og leikgerð: Guðrún Ásmundsdóttir

Listi: MTÓ, 2023

 

 

 

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími