Fáðu blaðið sent heim
Þjóðleikhúsblaðið verður gefið út á næstu dögum. Skráðu þig hér ef þú vilt fá blaðið sent heim að dyrum og vertu með þeim fyrstu til að kynna þér nýtt og spennandi leikár.
Panta blaðið
Kaupa áskrift
Þjóðleikhúsið vill með nýrri umhverfis- og loftslagsstefnu minnka kolefnisspor sitt og efla meðvitund og gagnrýna hugsun starfsfólks og sýningargesta varðandi náttúruna og umhverfið.
Af þeim sökum er Þjóðleikhúsblaðið nú prentað í mun minna upplagi en áður á sama tíma og tryggt er að allir áhugasamir geti fengið blaðið á því formi sem þeir kjósa.