Svandís Dóra leikur í Íbúð 10B hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Svandís Dóra Einarsdóttir útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hún lék hér í Þjóðleikhúsinu í Segulsviði, Karítas, Heimsljósi og samstarfsverkefnunum Til hamingju með að vera mannleg og (90)210 Garðabær. Meðal annarra leikhúsverkefna eru Njáluperlur sem hún skrifaði og leikstýrði sjálf fyrir Njáluhátíð og Forspil að framtíð í Norræna húsinu. Meðal kvikmynda og sjónvarpsþátta sem Svandís Dóra hefur leikið í eru þættirnir Bless bless Blesi sem verða frumsýndir hjá RÚV á næsta ári, Í versta falli, Danska konan, Útilega, Tár úr sementi, Afturelding, Ófærð 3, Vitjanir, Sumarljós og svo kemur nóttin, Ráðherrann, Venjulegt fólk, Fyrir framan annað fólk, Hross í oss og Borgríki. Hún hefur einnig tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum, svo sem FBI: International (CBS) og Love on Iceland og Christmas Quest fyrir Hallmark Channel. Hún hlaut tilnefningu til Edduverðlauna árið 2017 sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir Fyrir framan annað fólk, og var tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki á Central Alberta Film Festival árið 2023 fyrir kvikmyndina April Skies. Einnig var hún tilnefnd til Grímuverðlauna ásamt leikhópnum í sýningunni Til hamingju með að vera mannleg.